Árshátíð Kvartmíluklúbbsins 2011
27 október 2011
Árshátíð kvartmíluklúbbsins verður haldinn laugardaginn 19. nóvember í kiwanishúsinu helluhrauni 22.
Mæting er stundvíslega kl 19:00 og borðhald hefst kl 20:00.
Boðið verður upp á fordrykk við komu.
Veislustjóri verður Sigurjón Anderssen.
Myndasýning í boði BJB Kristinsson á meðan borðhaldi stendur, þegar borðhaldi lýkur verður sýnt vídíó frá spyrnum sumarsins og viðurkenningar veittar fyrir eitt og annað.
Miðaverði verður stillt í hóf 4990 kr, miðasölu lýkur 15 nóvember
Hægt er að greiða á tvenna vegu.
Fara í vefverslun klúbbsins og greiða. http://kvartmila.is/is/vorur/vara/id/23
eða millifæra á klúbbinn Reikningsnúmerið er:#1101-26-111199 Kennitala:660990-1199
Til að staðfesta skráningu þarf að senda Email með nafni og fjölda á jonbjarni@kvartmila.is
Salurinn tekur 60 manns.
Kvartmíluklúbburinn selur guðaveigar af flestum gerðum á mjög vægu verði, svo enginn ætti að þurfi að dösla neinu með sér.
Gullmeðlimir fá einn Öl og skot frítt
Árshátíðin er aðeins opinn fyrir matargesti
Hér að neðan má sjá glæsilegan matseðil, að þessu sinni verður það í hlaðborðsstíl.
Gos verður frítt á staðnum
Forréttir:
Brauð og smjör.
Reyktur og grafinn lax með sinnepssósu.
Miðjarðarhafssalat með terriaki laxi, korma steinbít,
sítrónu rækjum og ferskum koríander.
Aðalréttir:
Truffluhunangsgljáð kalkúnabringa.
Villikryddað lambalæri.
Meðlæti:
Timian kryddaðar kartöflur, ristað rótargrænmeti og eplasalat.
Sósur:
Sveppakremsósa.
Eftirréttur:
Heit súkkulaðikaka með blandaðri berjasósu og rjóma.

