Föndurkvöld KvartmÃluklúbbsins 15. Desember.
21 nóvember 2011
Allir að mæta í félagsheimilið 15. Desember með nýju stimpilhringina, heddin sem á eftir að porta og ventlagorma liðins sumars....
nú verður slípað og portað og kaffi meððí, 500l loftpressa óskast á svæðið.
Létt spaug en við ætlum að bjóða öllum sem vilja utan félags sem innan í jólakaffi og kökur þann 15. Desember í félagsheimili Kvartmíluklúbbsins við Kvartmílubrautina í Kapelluhrauni.
Við verðum með úrvals kökur og kaffi, kvartmílu myndir og slide í skjávarpanum, allir velkomnir og við opnum húsið kl 20:00 þetta Fimmtudagskvöld sem önnur.
Vertu þar eða vertu ferhyrningur.

