Krókur - Á þinni leið
29 nóvember 2011

Við þökkum Krók fyrir stuðninginn við Kvartmíluklúbbinn, Krókur hefur geymt fyrir okkur traktorinn og vörur og flutt traktorinn til og frá svæði okkar fyrir keppnir og æfingar ásamt því að sækja hann fyrir okkur þegar hann kom til landsins.
Krókur er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í flutningi og björgun ökutækja.
Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð þar sem veitt er alhliða þjónusta í meðhöndlun tjónabifreiða fyrir þá sem þess óska.
Þjónusta Króks er aðgengileg allan sólarhringinn alla daga ársins í gegnum síma 522-4600. Afgreiðslutími bifreiðageymslu og bílauppboðs er frá kl. 8:30-17:00 alla virka daga.
Starfsfólk Króks hefur mikla reynslu og félagið hefur yfir að ráða öflugum bíla- og tækjabúnaði til að sinna þörfum viðskiptavina.
Helstu þjónustuþættir Króks eru:
- Flutningur, björgun og vistun tjónaökutækja.
- Uppboðsmeðferð bifreiða.
- Tjónaskoðun bifreiða.
- Ástandsskoðun og verðmat bifreiða.
- Úttekt á viðgerðum ökutækja eftir stjórtjón.
- Björgun, flutningur, vistun, varðveisla og sala lausafjármuna.
Undir vörumerki Króks er einnig starfræktur uppboðsvefurinn bilauppboð.is þar sem hægt er að kaupa og selja bifreiðar á auðveldan, hagkvæman og fljótlegan hátt.
FLUTNINGAR
Krókur hefur á að skipa öflugum bíla- og tækjakosti til flutninga. Einnig eru starfsmenn félagsins vel þjálfaðir og reyndir í bíla- og tækjaflutningum. Krókur hefur á að skipa 5 sérhæfðum bílaflutninga -og björgunarbílum, flutningabíl sem tekjur 5 bíla í einu og vélaflutningavagni. Auk þess á Krókur sérhæfðan dráttarbíl og tækjaflutningabíl sem hentar tækjum og stærri bílum. Krókur býður upp á 24 stunda þjónustu allt árið um kring og leggur metnað sinn í skamman viðbragðstíma, örugga, hagkvæma og þægilega þjónustu. |
Krókur sér um flutning á ökutækjum sem lent hafa í umferðaróhöppum á höfuðborgarsvæðinu fyrir tryggingafélög.
Einnig býður Krókur upp á flutning fyrir einstaklinga og fyrirtæki á ökutækjum, vélum og tækjum.
Þá býður Krókur upp á björgunarþjónustu og aðstoð ef bílar bila eða flytja þarf þá á verkstæði.

Frábær leið til að kaupa og selja bíl
Bílauppboð Króks er þjónusta þar sem bílauppboð tjónabíla og annara bifreiða er ávallt í gangi.
Uppboðsvefurinn bilauppbod.is er mikið sóttur vefur þar sem hægt er að gera góð kaup í öllum tegundum ökutækja. Þar fer fram sala á tjónabílum, sem og bílum sem þarfnast smávægilegra lagfæringa. Þá er er líka boðið upp á bíla sem eru í góðu lagi.
Krókur bílauppboð býður upp á eftirfarandi þjónustuþætti:
- Einkauppboð
- Sala bifreiða fyrir einstaklinga
- Tjónamat Cabas skoðanir
- Mat á tjónum
- Sölumat
- Almenn skoðun og verðmat bifreiða
Sími Bílauppboðs er 522-4610 og netfangið er krokur@krokur.net .

UM KRÓK
Krókur er leiðandi aðili í flutningum og björgun ökutækja á Íslandi.
Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð fyrir tjónaökutæki þar sem veitt er ahliða þjónusta í meðhöndlun tjónabifreiða og annarra bifreiða samkvæmt óskum viðskiptavina.
Þjónusta Króks er í boði allan sólarhringinn alla daga ársins og þjónustusími félagsins 522-4600 er alltaf opinn.
Starfsmenn Króks eru 13 talsins og hafa mikla reynslu af björgun og meðhöndlun ökutækja.
Krókur hefur yfir að búa öflugum bíla- og tækjabúnaði til að sinna þörfum viðskiptavina sinna bæði stórum og smáum.
Þjónustumiðstöð Króks er að Suðurhrauni 3 í Garðabæ og er vel staðsett miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.
Húsnæðið er rúmgott og rúmar umtalsverðan fjölda bíla auk þess sem útisvæði félagsins býður upp á mikla möguleika.
Húsnæði félagsins er skipt niður í nokkra sali þannig að aðgengi viðskiptavina er til fyrirmyndar og aðgreing milli verkþátta í starfssemi félagsins er tryggð.

