MC Flokkur

MC Flokkur

MC flokkur
 
FLOKKSLÝSING
MC (Muscle Car) Flokkur fyrir bíla framleidda í USA sem eru á númerum með óbreytta yfirbyggingu með öllum löglegum götubúnaði virkum. Ræst skal á jöfnu "full tree". Öll keppnistæki skulu geta ekið amk 10km þolakstur fyrir hverja keppni(ákvarðast af keppnisstjóra hverju sinni). Þeir keppendur sem ekki ná að ljúka þessu detta úr keppni.
 
VÉL
 
Blokk

Vélarblokk verður að vera úr sama málmi og upphafleg blokk sem var í viðkomandi árgerð af ökutæki sem notað er. Vélarblokkir úr áli eða álblöndu eru ekki leyfðar, nema að þær hafi komið upprunalega í viðkomandi bíl sömu árgerða og með sömu vélarstærð þá verður blokkin að vera nákvæmelega eins og sú upprunalega sem sé hægt að sanna með verksmiðjunúmerum. Bora má vélar block sem þurfa þykir einnig má vinna olíugöng og bæta olíkerfi til að bæta endingu vélar. Ekki má létta vélarblokkir svo að styrkur þeirra minki og geti gert þær hættulegar. Að öðru leyti má vinni blokkir mála og pólera að vild til að auka styrk og endingu.
 
Vél

Verður að vera fjöldaframleidd bílvél sem er sömu gerðar og og strokka fjölda og viðkomandi ökutæki kom upprunalega með. Skipta má frá 6 strokka yfir í átta strokka, og frá "big block" yfir í "small block" eða öfugt, svo framarlega sem ekki sé sett önnur tegund af vél enn sem var fáanleg í viðkomandi ökutæki. Færa má vélar milli árgerða. Hámark slagrúmtaks er 515 rúmtommur (cid)
 
Hedd

Bannað er að breyta útliti hedda með færslu porta, portplötum eða á annan hátt. Portun á heddum er leyfð.Fræsa má úr heddun til að koma fyrir "rockerarma" festingum (studs) þegar farið er í stillanlega "rockerarma" úr óstillanlegum(rail type) og til að geta notað stýriplötur (guid plates). Ef álhedd eru notuð er bannað að porta, plana eða pólera. Öll álhedd skulu vera óportuð eins og þau komu frá framleiðanda. Ekki má víxla heddum á milli tegunda. Ef notuð eru pott hedd má porta þau, pólera fræsa og slípa eins og hver vill, þó má ekki breyta útliti þeirra (sjá að ofan). Ekki má nota hedd þar sem afstaða rockerarma eða kerta er önnur en original. Notkunn á CNC portuðum álheddum er bönnuð, hvort sem þau eru seld svo þannig eða ekki.
 
VENTLAR

Allar breytingar á ventlum eru leyfðar, svo sem: Stækkun breikkun á legg osf. Stækkun á ventli er leyfð svo framarlega að ekki þurfi að færa staðsetningu hans frá upprunalegri staðsetningu. Leyft er að nota allar tegundir efnis í ventla. Svo sem: "stainless steel", titanium, sodium fyllt stál osf.
 
Rockerarmar

Allar gerðir "rockerarma" eru leyfðar, þar á meðal "roller" armar. Breyta má frá óstillanlegum yfir í stillanlega. Ekki má þó breyta frá "stud type" yfir í "shaft type" "rockerarma". Leyft er að nota stuðnings slá (stud gridle) þar sem það þarf.
 
Ventlagormar

Frjálst val er um ventlagorma, læsingar(retaners), og splitti. Sæti fyrir ventlagorma má vinna að vild og nota má skinnur til að fá rétta hæð gorma. Ekki er gerð krafa um neitt sérstakt efni í ofnagreindu
 
Ventlalok

Frjáls val er á ventlalokum hvað varðar: útlit, gerð, efni, hæð, osf. Eina krafan um ventlalok er að þau þétti, séu lekafrí og komist undir orginal vélarhlíf.
 
Kambás

Allar tegundir og gerðir af kambásum eru leyfðar ss: vökva, beinn, roller, osf. Kambásar frá öðrum framleiðendum en orginal leyfðir.
 
Undirlyftur

Allar þær tegundir af undirlyftum, sem passa við viðkomandi tegund af kambás leyfðar.
 
Tímagír

Aðeins tímakeðjur og hjól eru leyfð. Mega þó vera úr stáli, tvöföld og "roller" gerð. Reimdrif, gírdrif osf sem er ekki eins og framleitt var með upphaflega(not OEM type) bannað.
 
Sveifarás

Leyft er að vera með hvaða sveifarás sem er úr hvaða efni sem er með hvaða slaglengd sem er svo framarlega að hann fari ekki fram úr 100 rúmtommu reglunni. Nota má hvaða efni sem er í sveifarásinn.
 
Stimpilstangir

Allar gerðir af stimpilstöngum eru leyfðar nema stangir úr áli eða álblöndu. Nota má hvaða lengd af stöngum sem er og sem passa við viðkomandi sveifarás. Stimpilstangir má vinna að vild með slípun, pólerun ofl. Breyta má stöngum úr venjulegum í fljótandi stimpilbolta. Nota má sterkari stangarbolta og annað sem kann að styrkja stangirnar.

 
Stimplar

Allar gerðir orginal og "aftermarket" stimplar eru leyfðir, þar á meðal sérsmíðaðir. Allar
 
Stimpilhringir

Allar tegundir stimpilhringja sem passa í viðkomandi stimpla eru leyfðar. "Zero gap"hringir eru leyfðir. Leyft er að nota hvaða efni sem er í stimpilhringi.
 
Olíudæla

Nota má hvaða olíudælu sem er af hvaða gerð sem er. Dælur sem dæla meira magni og/eða þrýsting leyfðar. Utanáliggjandi olíudælur leyfðar, verða að vera drifnar af sveifarás. "Dry sump" olíudælur og kerfi bönnuð. Nota má hvaða olíu "pick up" sem er þar á meðal sveiflu "pick up"
 
Olíukerfi

"Dry sump" olíukerfi bönnuð. Að öðru leyti má nota hvaða olíu kerfi sem er frá hvaða framleiðanda sem er. Olíugöng í vélarblokkum og heddum má grafa út, pólera eða vinna á annan hátt. Nota má hindranir í olíugöng til að stýra olíuflæði frá heddum að sveifarás osf. Festa má net fyrir göt og op þar sem hætta er á að brotnir vélarhlutir gætu komist niður að sveifarás. Allar breytingar á olíukerfi til að auka endingu véla eru leyfðar.
 
ELDSNEYTISKERFI
 
Soggrein

Soggrein miðast við einn blöndung. Beinar Innspýtingar eru bannaðar, nema að þær hafi verið fáanlegar á þeirri vél þeirrar árgerðar sem viðkomandi ökutæki er, og verður innspýtingin þá að vera orginal (OEM) sem skal sýnt fram á með réttum númerum. Þegar talað er um einn blöndung er oftast rætt um fjögurra hólfa blöndung, og eru þá taldir með "Predator" og aðrir þvílíkir blöndunga. Val á blöndungum það er gerð, stærð eða tegund er frjálst. Ef bílar hafa komið original með fleiri en einum blöndung á þeirri véla tegund sem notuð er skal leyft að nota samskonar búnað sem þarf þá að vera frá sama framleiðanda og viðkomandi vél/bíll og hafa verið fáanlegur á viðkomandi vél. EF fjölblöndunga sogrein er ekki til frá framleiðanda undir "OEM" númeri er heimilt að nota sambærilegan búnað frá öðrum framleiðendum svo framarlega sem hann lítur eins út og er viðurkennd endurframleiðsla á upprunalega hlutnum. Engin soggrein má vera svo há að hún passi ekki undir óbreytta vélarhlíf ökutækis, og ekki má heldur hækka blöndunga svo mikið að þeir komist ekki undir óbreytta vélarhlíf. Forþjöppur bannaðar. Nitro gas N2O bannað
 
Blöndungur

Engin takmörk eru fyrir stærð blöndunga ef um einn blöndung er að ræða. Blöndunga má vera búið að vinna að vild. Sérsmíðaðir blöndungar eru leyfðir.
 
Bensíndæla

Aðeins ein bensíndæla er leyfð og verður hún að vera drifin áfram af bílvélinni, eða með rafmagni. Nota má bensíndælur sem dæla meiri þrýsting og/eða magni. Nota má dælur frá hvaða framleiðanda sem er. Sveifarásknúnar bensíndælur (innspýtinga dælur) bannaðar. Nema að þær hafi verið til staðar upprunalega frá framleiðanda. Bensínleiðslur: Bensín leiðslur skulu ekki vera sverari en 1/2".Ef skipt er um bensín lagnir verða nýju lagnirnar að vera úr samskonar efni og þær gömlu. Mælt er með að bensín leiðslur séu varðar þar sem þær fara framhjá skiptingu kasthjóli/converter, viftuspaða og damper.
 
Bensínsíur

Frjálst er að nota eins margar bensínsíur og hver vill eða enga. Stærð, lögun og tegund skiptir ekki máli. Bensíntankur: Bensíntankur verður að vera original eða eins og original. Ef ekki er upprunalegur tankur til staðar verður sá sem fyrir hann er að líta eins út, taka sama magn, og vera í sömu festingum, og sá upprunalegi. Bensínleiðslur verða að vera teknar út úr tankinum á upprunalegum stað. "Sump" er bannað.
 
Lofthreinsari

Lofthreinsari er aukahlutur og ráða menn hvort hann er notaður eða ekki.
 
Eldsneyti

Aðeins bensín sem hægt er að kaupa af dælu á bensínstöð leyft. Öll almenn bensínbætiefni leyfð.
 
KVEIKIKERFI
 
Kveikja

Hámark má nota eina kveikju, og skal hún vera annað hvort rafeinda eða platínu. Magnetu kveikjur og "Crank trigger" er bannað. Platínu kveikja má vera með eins mörgum platínum og hver vill, einnig má tengja kveikjumagnara við hana. Rafeindakveikja(electronic igniton) má vera af hvaða gerð sem er og frá hvaða framleiðanda sem er, með eða án utanáliggjandi magnara. Útslátt og önnur hjápartæki má nota, þó ekki seinkara, biðbox eða önnur tæki sem hjálpa við brautarstart. GM HEI kveikjur eru leyfðar enda teljast þær til rafeinda kveikju. Ekki má breyta staðsetningu á kveikju frá original.
 
Háspennukefli

Hvaða háspennukefli sem er má nota svo framarlega sem það sé aðeins eitt og passi við
 
Þræðir

Allir kertaþræðir orginal eða eftirframleiddir (aftermarket) eru leyfðir. Kerti: Allar tegundir kerta (gneistatappa)leyfðar.
 
ÚTBLÁSTURSKERFI
 
Flækjur

Pústflækjur má setja í staðinn fyrir greinar. Leyft er að klippa úr innribrettum fyrir flækjum Og má ekki vera meira bil en 15mm frá röri að brún á gati. Sverleiki á rörum er frjáls, og einnig sverleiki á safnara. Safnari (collector) má ekki vera lengri en 60cm. Púströr: Púströr skulu ná út fyrir yfirbyggingu bíls svo að hægt verði að fá á þau skoðun. Sverleiki röra má ekki fara yfir 2,5" að innanmáli. H-pípa er leyfð. Hámark tvöfalt kerfi
 
Hljóðkútar

Opnir hljóðkútar bannaðir. Inn og úttak má ekki fara yfir 2,5" í sverleika. Sérsmíðaðir og opnir hljóðkútar ss. Flowmaster, Dynomax race, Borla osf bannaðir
 
GÍRKASSI
 
Gírkassi

Gírkassi beinskiptur má mest hafa fimm gíra áfram og einn afturábak. Ef notaður er fimm gíra kassi þá verður viðkomandi árgerð af bíl með viðkomandi vélargerð að hafa fengist með fimm gíra kassa og verður kassinn þá að vera eins og sá upprunalegi samkvæmt númerum. Skiptir: Nota má hvaða eftirmarkaðs skiptir sem er eða standard skiptir. Fjarlægja má stokk milli framsæta til að koma fyrir skipti.
 
Kúplingshús

Sprengihelt kúplingshús samkvæmt staðli æskilegt. Ef notað er standard hús er æskilegt að gólf sé styrkt.
 
Kúpling

Frjálst er að nota hvaða kúplingu og kasthjól sem er. Fjöldiska kúplingar eru þó bannaðar. Æskilegt er að kúpling og kasthjól sé samkvæmt staðli.
 
Sjálfskipting

Nota má hvaða tveggja eða þriggja þrepa sjálfskiptingu sem er. Fjögurra þrepa skiptingar eru bannaðar nema að þær hafi verið framleiddar fyrir viðkomandi bíl og vélartegund af viðkomandi árgerð sem yrði að sýna með númerum að væri rétt. Nota má "trans pack" eða "manual" ventlabox í sjálfskiptingar. "Trans brake" er bannað. Að öðru leiti eru allar breytingar á sjálfskiptingu leyfðar.
 
Converter

Keppnis vökvatengsl (converter) eru bönnuð. Lágmarksstærð á "converter er 10". Breyta má converterum en passa verður að minnka ekki húsin niður fyrir 10".
 
Hlífar

Æskilegt er að hafa bæði kashjólshlíf og skiptingahlíf samkvæmt staðli, eða löglega mottu utan um skiptingu í keppni.
 
DRIFRÁS
 
Drifskaft

Æskilegt er að Baula sé utan um drifskaft á öllum bílum í þessum flokki, og skal hún staðsett samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda og reglum KK.
 
Hásing & Drif

Frjálst val er á hásingum sem þýðir að setja má eina tegund af hásingu undir aðra tegund af bíl. Hásing skal þó aldrei vera lengri eða styttri en sú sem var orginal undir bílnum. Nota má hvaða drifhlutfall sem er. Læst drif leyfð. Þó er bannað að nota spólulæsingar, soðin eða steypt mismunadrif eru bönnuð. Æskilegt er að notaðir séu sterkari öxlar og sterkar boltar fyrir felgur.
 
Fjöðrun

Fjöðrun og fjaðrakerfi má ekki breyta frá original í neinum bíl. Fjöðrunarkerfi verður að vera eins og hver tegund og gerð kom með frá verksmiðju. Þetta á við bæði um fram og aftur fjöðrun. Staðsetning fjöðrunarkerfis verður einnig að vera sú sama og var frá verksmiðju á hverri tegund og gerð. Ekki má færa fjaðrafestingar eða breyta þeim á nokkurn hátt. Breyta má stífleika fjaðra, gorma, vindustanga osf, bæta má blöðum í blaðfjaðrir eða fjarlægja eftir þörfum. einnig má mýkja eða stífa gorma/vindustangir eftir þörfum. Ekki má nota einblöðung sem afturfjöðrun. Löng fjaðrahengsli bönnuð.
 
Búkkar

Allir venjulegir spyrnubúkkar leyfðir. Bannað er að nota "four link" eða "ladder link" Ekki má klippa úr yfirbyggingu til að koma búkkum fyrir.
 
Demparar

Einn virkur dempari verður að vera á hvert fjaðrandi hjól. Keppnis demparar bannaðir. Það er allir demparar sem ekki eru ætlaðir í götuakstur. Að öðru leyti er hlutfall dempar frjálst og notkun gasdempara er leyfð. Ekki má bora dempara eða tappa af þeim vökva eða gasi.
 
Spólvarnir

Notkun spólvarna er að öllu leiti bönnuð.

 
Yfirbygging

Yfirbyggingu má ekki breyta á nokkurn hátt frá upprunalegri smíði frá verksmiðju. Allar léttingar og plast hlutir eru bannaðir með eftirfarandi undantekningum. Nota má plast frambretti svo framarlega sem mismun á þyngd þeirra og orginal bretta sé bætt við framan í bílinn á ca þeim stað sem hún hefði verið. Nota má plast húdd svo framarlega að það sé ekki með neinum öðrum opnunum en þeim sem voru til orginal á viðkomandi árgerð, gerð og tegund. Ef um opnun (scoop) er að ræða á vélarhlíf hvort sem hún er þar original eða hefur verið sett á má hún ekki vera að neinu leyti öðruvísi en original hægt var að fá á viðkomandi tegund, gerð og árgerð. Nota má áfastar opnanir(scoop) á vélarhlíf ef þær eru samkvæmt því sem hér fór á undan. Innribretti og hjólskálar verða að vera upprunalegar eða eins og upprunalegar og þá úr sömu efnum eins og upprunalega. Allar breytingar á hjólskálum og innribrettum bannaðar.
 
Innrétting

Allir bílar verða að vera með upprunalegri innréttingu eða eins og upprunalegri innréttingu. Bannað er að fjarlægja eða færa til nokkurn hluta innréttingar þar með talið teppi. Klæða má innréttingu að vild og breyta þannig að hún ekki léttist. Gólfteppi verður að vera á öllu gólfi bíls eða eins og kom frá framleiðanda. Skipta má út framstólum fyrir keppnisstóla sem þó þurfa að vera í original staðsetningu. Taka má burt stokk milli framsæta eða hluta hans til að koma fyrir skipti. Aftursæti má fjarlægja til að koma fyrir veltiboga. Ganga verður snyrtilega frá opinu sem myndast þegar hlutar innréttingar eru fjarlægðir.
 
Belti

Allir bílar verða að vera með amk. þriggja punkta öryggisbelti. Þeir bíla sem fara niður fyrir 11,99sek skulu hafa 5 punkta keppnisbelti.
 
Grind

Allar breytingar á grind eru bannaðar. Þó er leyfilegt að styrkja grindur.
 
Stýri

Bannað er að skipta frá orginalstýrisvél(snigill og sektor) og setja í staðinn tannstöng eða öfugt. Leyft er að skipta frá "power stýri yfir í "manual" og öfugt. Minnsta særð á stýrishjóli er 13" (34cm).
 
DEKK & FELGUR
 
Felgur

Allar gerðir af felgum leyfðar. Felgur mega ekki vera minni en 13" og ekki stærri en 16". Nema að það hafi verið original fáanlegt á viðkomandi bíl árgerð og gerð. Hafa má hvaða breidd af felgum sem er. Þó mega þær ekki ná út fyrir yfirbyggingu.
 
Dekk

Allir hjólbarðar verða að vera "DOT" merktir. Hámarks hæð hjólbarða má ekki vera meiri en 28". Öll dekk þar sem merkingar framleiðanda hafa verið fjarlægðar bönnuð. Slikkar bannaðir. Öll dekk sem merkt eru "Soft Compund" (götuslikkar) hvort sem það eru Radial eða Diagonal bönnuð. Öll diagonal dekk verða að vera minnst 6 strigalaga. Ofangreint gildir líka um framdekk.
 
ÖKUMAÐUR

Ökumaður verður að sitja í original staðsettu ökumannssæti og vera með staðlaðan hjálm á höfði. Tregbrennandi keppnisgalli æskilegur.
 
LETUR

Ekki er leyft að vera með neitt letur eða merki á yfirbyggingu bíls. Þegar talað er um letur er átt við auglýsingar. Minni miðar eru leyfðir í hófi. Letur þar með taldar auglýsingar má setja í rúður ökutækis þó ekki þannig að hindri útsýni og skyggi á keppnismerkingar.
 
Styrktaraðilar

Styrktaraðilar eru leyfðir, þó mega auglýsinga ekki vera á öðrum stöðum en á gluggum ökutækis. (sjá að ofan) Reglur og lög Kvartmíluklúbbsins.