SE Flokkur

SE Flokkur

SE flokkur
 
GÖTUBÍLAFLOKKUR

 
 
FLOKKALÝSING

Flokkur fyrir bíla sem keyrðir eru á götum,með fulla skoðun og löglegir skv. Íslenskum lögum og tilbúnir til skoðunar í löglegri skoðunarstöð. Keppnistæki skulu auðkennd með: SE/ og númeri ökumanns. Eftirfarandi Þyngdartakmörk eru í flokknum: Ökutæki með vélarstærð að 415 cid, skulu vera lágmark 1350kg. Ökutæki með vélarstærð yfir 415 cid, skulu vera lágmark 1550kg. Hámarks vélarstærð 515 cid. Ræsikerfi: "Full tree"
MÁL OG STAÐLAR
 
VÉL

Skal vera bílvél. Allar mekanískar tjúnningar leyfðar nema takmörkun er á forþjöppum. Sjá forþjöppur.
 
ÚTBLÁSTURSKERFI

Útblásturskerfi verður að vera til staðar í bílum í keppni samkvæmt reglum um gerð og búnað ökutækja á Íslandi. Kerfið má ekki beinast að vagni eða dekkjum , og vera tilbúið til skoðunar hjá viðurkenndri skoðunar stöð hvenær sem þurfa þykir. Hámarks sverleiki röra er 4".
 
ELDSNEYTISKERFI

Fjarlæga má upprunalegan eldsneytistank. Ef það er gert verður að nota viðkennda eldsneytis sellu (fuel cell). Og verður hún að vera loftræst út fyrir yfirbyggingu ökutækis. Ef eldsneytis sella er notuð verður að gera eldvegg milli farangursrýmis og ökumannsklefa úr áli eða stáli. Einnig verður rafgeymir sem staðsettur er hjá eldsneytissellu að vera í kassa og einangraður frá selluni. Leggja má nýar eldsneytisleiðslur og nota má þann sverleika sem þurfa þykir. Ef eldsneytisleiðslur eru aðrar en upprunalegar skulu þær vera vírofnar eða úr málmi. Gera má þró (sump) í eldsneytistank. Sjá aðalreglur 1:5.
 
ELDSNEYTI

Nítró gas N2O (glaðloft) og alkohól bannað.
 
VÖKVAYFIRFALL

Vökvayfirfalls tankur er skylda á öllum keppnisbílum og verður minnst að taka ½ lítra. Sjá aðalreglur 1:7.
 
FORÞJÖPPUR

Bannaðar nema að þær hafi komið á bílnum frá framleiðanda eða með samþykki hans frá umboði. Sé svo þarf viðkomandi forþjappa hvort sem um er að ræða kefla eða afgasforþjöppu að vera sömu gerðar og stærðar og sú upprunalega, en þarf ekki að vera frá sama framleiðanda.
 
INNGJÖF

Skal stjórnast af ökumanni og má enginn búnaður hvorki rafmagns, loft, vökva eða annar hafa áhrif á stjórnun inngjafar. Sjá aðalreglur 1:14.
 
2. DRIFRÁS
 
TENGSLI, KASTJÓL & KASTJÓLSHLÍF

Séu tengsli og kasthjól ekki upprunaleg eða frá upprunalegum framleiðanda, verða þau að vera samkvæmt staðli SFI Spec 1.1. Æskilegt er að allir bílar noti sprengihelt kúplingshús, og er það skylda þegar um er að ræða bíla sem komnir eru niður fyrir 11,00sek og/eða á meira en 110 mílna endahraða 180km, og/eða eru með götuslikka. Sprengiheld kúplingshús verað að vera eftir staðli SFI Spec 6.1. eða 6.2.
 
DRIFSKAFT

Baula utan um drifskaft er æskileg á öllum bílum, en er skylda ef bílar eru komnir á meira en 100mílna 160km endahraða og/eða nota"soft compound" dekk. Sjá aðalreglur 2:4.
 
AFTURÁS

Nota má hvaða afturás sem er bur séð frá gerð og árgerð. Æskilegt er að sérsmíðaðir öxlar séu notaðir.
 
SJÁLFSKIPTINGAR

Allar sjálfskiptingar verða að nota vökvatengsli (converter). Gírfjöldi og skiftiröð frjálst þó verða allar skiptingar að hafa fleiri en einn gír og virkann bakkgír.
 
SJÁLFSKIPTINGARHLÍF

Sjálfskiptingarhlíf er æskileg á öllum bílum. Hlífin er skylda í öllum bílum sem komnir eru niður fyrir 11,00sek og eða 125mílur 200km í endahraða, eða nota "Powerglide sjálfskiptingar". Sjálfskiptihlíf verður að vera samkvæmt staðli SFI Spec 4.1.
 
3. BREMSUR OG FJÖÐRUN
 
BREMSUR

Vökvaknúnar bremsur á öllum hjólum skylda. Sjá aðalreglur 3:1.
 
BALLEST

Leyfð. Sjá aðalreglur 4:2.
 
STÝRI

Aðeins venjuleg fjöldaframleidd stýri leyfð. Minnsta stærð á stýrishjóli er 13" (33,02cm). Breyta má frá "power"stýri yfir í "manual" og öfugt. Ef breytt er frá stýrisvél (snigill og sektor) yfir í tannstöng verður að nota tannstangarstýri sem gert er fyrir viðkomandi bíl, þyngd, stýrisgang og hjólbarða.
 
FJÖÐRUN

Ekki má breyta frá fjaðrablöðum yfir í gorma eða vindustangir eða öfugt, þar sem það er ekki upprunalegt. Breyta má stífleika fjöðrunar með því að taka úr blöð, gorma, vindustangir og setja mýkri/stífari samskonar í staðin. Sambyggðir gormahöggdeyfar bannaðir nema að þeir hafi komið upprunalega í viðkomandi bíl. Einn virkur höggdeyfir verður að vera á hvert fjaðrandi hjól amk.
 
SPYRNUBÚKKAR

Spyrnubúkkar leyfðir. Sjá aðalreglur 3:5.
 
PRJÓNGRINDUR

Prjóngrindur leyfðar, þó ekki með málmhjólum.
 
4. GRIND
 
BALLEST

Ballest leyfð. Sjá aðalreglur 4:2.
 
STUÐARAR

Stuðarar upprunalegir eða eins og upprunalegir skylda. Séu notaðir plast stuðarar skulu þeir líta út eins og upprunalegir
 
GRIND

Grind skal vera upprunalegeða eins og upprunaleg og þá úr eins efnum. Styrkingar á grind leyfðar. Tengja má grindarbita saman til að hindra að bíllinn snúi upp á sig. Bannað er að breyta grind á nokkurn hátt. Sjá aðalreglur 4:1, 4:4, 4:10.
 
HÆÐ FRÁ JÖRÐU

Minnsta hæð frá jörðu er 3" (7,62cm) frá fremsta punkti bíls að punkti 12"(30.48cm) aftan við miðlínu framhjóla. Síðan 2"(5,08cm) fyrir það sem eftir er af bílnum nema olíupanna og flækjur.
 
VELTIGRIND OG BÚR

Allir bílar sem fara 11,99sek og/eða 120míl (195km) undir þurfa veltigrind. Bílar sem fara 10,99sek og/eða 140míl (225km) undir þurfa veltibúr. Blæju og þaklausir bílar sem fara á undir 13,90sek þurfa veltigrind, og þurfa síðan veltibúr þegar þeir fara undir 12,99sek. Sjá aðalreglur 4:10.
 
5. HJÓLBARÐAR OG FELGUR
 
HJÓLBARÐAR

Öll viðurkennd götudekk leyfð sem eru með löglegan stimpil það er DOT eða sambærilegan sem viðurkenndur er af skoðunarstöðum og tæknimönnum KK. Stærð dekkja má ekki vera meiri en 30 X 12,5. FELGUR: Allar gerðir af felgum leyfðar. Minnsta stærð á felgum 13" nema að bíllinn hafi komið á minni felgum frá framleiðanda.
 
6. INNRÉTTING
 
SÆTI

Skifta má út sætum með lágu baki og bekkjum og setja í staðinn sæti með háu baki eða körfustóla, keppnisstóla, sérsmíðaða stóla. Skylda er að nota keppnisstól í öllum bílum sem fara undir 10,99sek og/eða yfir 120mílum 195km í enda, æskilegt er samt sem áður að keppnisstólar séu notaðir í alla keppnisbíla. Sæti má bólstra að vild. Ekki má skera úr sætum til að lækka þau eða breyta þeim á annan hátt. Öll sæti skulu vera til staðar í innréttingu bæði að framan og aftan.
 
BODDÝSTÁL

Allt í ökumanns og farþegarými verður að vera upprunalegt eða eins og upprunalegt og þá úr eins efni og framleiðandi notaði. Það sama á við um ál. Magnesíum er bannað.
 
KLÆÐNING

Allir bílar skulu vera með fulla innréttingu í keppni.
 
7. YFIRBYGGING
 
YFIRBYGGING

Allir bílar skulu vera með yfirbyggingu eins og þeir komu með úr verksmiðju og úr sömu efnum. Trefjaplast vélarhlíf leyfð. Trefjaplast bretti eru leyfð að framan. Trefjaplast samstæður bannaðar. Að öðru leyti en að framan verður yfirbygging að vera ú sömu efnum og komu frá viðkomandi framleiðanda. Bannað er að klippa úr yfirbyggingu hvort sem um er að ræða tvöföldun eða eitthvað annað.
 
BRETTI

Allir bílar verða að vera með samskonar bretti og þeir komu með úr verksmiðju. Innribretti verða að upprunalega lögun og vera úr sömu efnum og original. Ekki er leyft að klippa úr létta eða breyta innribrettum á nokkurn hátt nema til að koma fyrir pústflækjum og má þá ekki klippa meira en svo að brún brettis má ekki vera meira en 15mm frá ystu brún röra. Bannað er að klippa úr eða breyta hjólskálum að aftan á nokkurn hátt, þær má þó styrkja.
 
GÓLF

Upprunalegt gólf eða gólf sem lítur út sem upprunalegt og er úr samskonar efnum og upprunalegt skylda. Sjá aðalreglur 7:6. GÖTUAKSTURSBÚNAÐUR: Allur götuakstursbúnaður sem skyldugur er skv.reglum um gerð og búnað ökutækja á Íslandi er skylda í keppni. Meða götuakstursbúnaði er verið að tala um virkar þurrkur, miðstöð, rúðu upphalara, ljós, hurðalæsingar o.s.f.
 
RÚÐUR

Allar rúður verða að vera úr gleri eins og upprunalega. Allar rúður skulu annars vera úr öryggis gleri.
 
8. RAFKERFI
 
RAFGEYMAR

Mest tveir leyfðir. Staðsetning frjáls, þó ekki inní ökumanns eða farþegarými. Nota má sýru og/eða þurrgeymi. Sjá aðalreglur 8:1.
 
TÖLVUR OG GAGNAÖFLUN
Sjá aðalreglur 8:2.

 
KVEIKIKERFI

Allar tegundir kveikikerfa leyfðar. Þó má ekki nota tímastillt kveikibox (stutter box). Ef notaðar eru Magnetukveikjur verða þær að vera tengdar þannig að bíllinn drepi á sér þegar svissað er af honum með straumlás(sviss) eins og upprunalega er gert ráð fyrir. Sjá aðalreglur 8:1, 8:4, 8:5.
 
HÖFUÐROFI

Höfuðrofi á rafkerfi er æskilegur í öllum bílum og er skylda í bílum sem fara undir 11,99 og hraðar en 120mílur 195km.
 
AKSTURSLJÓS

Allir bílar skulu vera útbúnir ökuljósum skv. Íslenskum lögum og eins og viðkomandi bíll kom með frá verksmiðju.
9. STUÐNINGSFLOKKUR
 
DRÁTTARTÆKI

Dráttartæki bönnuð.
10. ÖKUMAÐUR
 
SKÍRTEINI OG RÉTTINDI

Almenn ökuréttindi og gillt ökuskírteini skylda.
 
STAÐSETNING ÖKUMANNS

Ökumaður skal staðsettur í ökumannssæti sem þarf að vera á sama stað og upprunalega var gert ráð fyrir.
 
ÖRYGGISBELTI

Þriggja punkta öryggisbelti skylda í öllum bílum. Bílar sem eru komnir niður fyrir 11,99 eða 120mílur, 195km í endahraða verða að vera með viðurkennd fjögurra punkta belti (fimm punkta æskileg). Allir bílar sem komnir eru niður í 10,99 og/eða 140mílna 225km hraða eða neðar verða að vera með fimm punkta belti 3" (7,62cm) breið.
 
HJÁLMUR

Sjá reglur.
 
HLÍFÐARFÖT

Hlífðarföt úr tregbrennandi efnum skylda. Þegar komið er neðar en 10,99 og í 140mílur verður ökumaður að vera í hlífðarfötum, jakka og buxum eða samfesting sem stenst staðal SFI Spec 3-2A/5.
 
UPPHITUN

Sjá aðalreglur 9:10.