Reglur:Aðalreglur

Úr Kvartmíluklúbburinn

Fara á: flakk, leita

Hér má nálgast aðalreglurnar á PDF sniði

Aðalreglur KVARTMÍLUKLÚBBSINS
(Hluti 17 NHRA)
Hvaða ökutæki sem er burtséð frá flokki, verður að uppfylla og komast í gegnum öryggis, tækni og flokkaskoðun áður en það má fara í tímatökur eða hefja keppni á annan hátt sem haldin er af Kvartmíluklúbbnum (NHRA USA)

Efnisyfirlit

VÉL:1

1:1 Aflaukar (power adders):

Aflauki (Power adder) er eitt af eftirfarandi, nítró alveg sama hvernig það er uppsett, reimdrifin forþjappa eða afgas forþjappa hvort sem það sé ein eða tvær, ef tveir aflaukar eru leyfðir í flokk þá er það samsetning af tvemur af þessum þremur sem taldir voru upp hér að framan. Stroker er ekki talinn sem aflauki

1:2 Kælikerfi:

Ef kælikerfi er sérhannað skal það vera staðsett á sama stað og upprunalegt kælikerfi í þeirri yfirbyggingu sem notuð er. Í grindarbílum með vél fyrir framan ökumann skal kælikerfið vera staðsett fyrir framan vél. Ef grindarbíll er með vél fyrir aftan ökumann skal setja hlífðarplötu, sem nær frá grindarbita að grindarbita og að efsta punkti veltibúrs, ef vatnskassi er staðsettur fyrir framan vél.
Mæling vélastaðsetningar

Mæling vélastaðsetningar

1:3 Vél:

Allir flokkar eru takmarkaðir við bílvél aðeins. Keppendur í þeim flokkum sem takmarkast af hlutfalli þyngdar og slagrúmtaks skulu gefa upp nákvæmt slagrúmtak vélar (cid) með útborun breyttri slaglengd o.s.frv.. enginútborun frá framantöldu er leyfð. Ef slagrúmtak stendur ekki á heilli tölu skal það hækkað upp í næstu heilu tölu fyrir ofan, þ.e. 301,2 hækkað upp í 302. Ef stærð vélar er breytt á meðan keppni stendur (í keppni) skal keppandi tilkynna það keppnisstjórn (tæknistjóra) áður en hann fer í næstu ferð (heldur áfram keppni). Hæð að miðlínu sveifaráss má ekki vera meiri en 24” (61cm) frá jörðu í neinum flokki. Til að hindar að ápressaður sveifarásdamper losni og valdi slysi skal framkvæma eftirfarandi: Bora í gegnum ytri hring og setja bolta eða hlífðarskjöld sem hindrar að ytri hringur á tvöföldum pressuðum damper losni (þetta á ekki við um óbreytta bíla og þá bíla sem eru með skoðunn frá löggylltri skoðunarstöð og eru keyrðir í almennri umferð). Vél sé fest við grind með minnst tveim 3/8” (0,9525cm) Grade 5 boltum.

Ventlaskurður í stock/superstock

1:4 ÚTBLÁSTUR:

Öll ökutæki skulu hafa útblásturssafnar eða rör til að beina útblæstri frá yfirbyggingu og aftur, frá ökumanni og eldsneytisgeymi. Útblástursrör verða að hafa málmfestingar til að hindra að eitt eða fleiri geti losnað á meðan á ferð stendur. Ef hljóðkútar eru notaðir skulu þeir vandlega festir við útblásturskerfi, botn á bíl og/eða grind.

1:5 BLOSSAHLÍF:

Inntak á blöndungi/innspítingumá ekki vera óvarið. Í stað vélarhlífar skal blöndungur/innspíting vera með blossahlíf eða loftháf sem hylur topp, bak, og hliðar og hindrar að eldsneyti sogist í loftstraum eða að það lendi í andliti ökumanns.

1:6 Almennt eldsneyti (pump gas):

Er það eldsneyti sem að er í almennri dreifingu á eldsneytis útsölustöðum á Íslandi

1:7 ELDSNEYTISKERFI:

Allir eldsneytistankar, leiðslur, dælur og svo frv. Skulu vera innan grindar eða stályfirbyggingar. Allar eldsneytisleiðslur þar með talið leiðslur í bensínþrýstimæli og/eða leiðslur til gagnasöfnunartækja, skulu vera úr málmi eða vírofnar. Hámarks lengd á gúmíslöngum (viðurkenndum bensínleiðslum) er 12”(30,48cm) frá tank að blöndung. Þar sem því er viðkomið skulu eldsneytistankar og leiðslur staðsett fyrir framan vél (sérsmíðuð ökutæki). Ef notaður er eldsneytisfjölleiðari (fuelblock) skulu þeir festir a.m.k. 6”(15,24cm) framan við svæði kasthjóls og kúplingshúss. Eldsneytisleiðslur sem liggja á svæði kúplingshúss verða að liggja inn í 16”(40,64cm) löngu röri með 12”(1,27cm) veggþykkt, örugglega festu sem vörn gegn bilun í eldsneytisleiðlum (á ekki við bíla sem keyrðir eru í almennri umferð og skoðaðir af viðurkenndri skoðunarstöð, þó æskilegt). Skylda er að hafa eldsneytisleiðslur í öryggisstálpípum eða að þær séu vírofnar ef þær fara fram hjá drifi eða forþjöppu. Eldsneytisleiðslur má ekki staðsetja í drifrásargöngum. Sjá flokkareglur. Eldsneytistankar sem staðsettir eru fyrir framan grill verða að vera varðir fyrir höggum eða því að falla saman með t.d. stágrind. Einangraðir eldsneytistankar bannaðir. Ökutæki með breyttu eldsneytiskerfi öðru en rafmagnseldsneytisdælum verða að vera búin handstýrðum hraðloka í seylingar fjarlægð frá ökumanni, staðsettaum á aðaleldsneytisleislu frá tanki að blöndung/innspýtingu. Skylda er að staðsetja dælur fyrir beinar innspýtingar fyrir utan svæði kasthjóls (fly whell area) þar sem því verður við komið. Eldsneytistankar eða önnur ílát sem eldsneyti er geymt í má ekki staðsetja inn í ökumanns rými, nema að annað sé tekið fram í flokka reglum. Allir eldsneytistankar skulu einangraðir frá ökumannsrými með eldvegg (hvalbak) algerlega þéttum sem hindra á að eldsneyti geti komist inn í klefa ökumanns. Læsingaboltar (posetive locking bolts) skulu vera á loki eldsneytistanks í öllum opnum ökutækjum, og ökutækjum án yfirbyggingar. Efsti hluti eldsneytistanks skal vera neðar en efsti hluti afturhjóla. Þar sem flokkareglur leyfa notkunn á eldsneytissellum (fuel cells) skulu þær hafa málmbox til hlífðar þar sem þær eru ysti hluti ökutækis eða standa út fyrir yfirbyggingu eða farangursgeymslugólf. Allar eldsneytissellur skulu hafa þrýstilok, og öndun sem nær út fyrir yfirbyggingu eða innbyggðan þrýstiventil (checkvalve). Kæling eða annað sem breytir hitastigi inntakslofts bannað. Allar tilraunir til að hita eða kæla eldsneyti lífrænt (kælibox, ís o.s.f.) bannað nema að annað sé tekið fram í flokkareglum. Hringrásarkerfi eldsneytis sem ekki er hluti af eldsneytisdælu er bannað.

Æskileg festing á bensíntanki

1:8 BENSÍN (GASOLINE):

Bensín er blanda tveggja kolefnisvökva. Bensín er góður rafmagnseinangrari, leiðir ekki straum og er nokkuð áhrifalaust sem leiðari vegna lélegrar leiðni vökvans. Venjulegt “D.C.” fyrir kolefnisvökva sem myndar bensín er 2,025. Þetta er skylgerint sem 0 á bensínskoðunarmæli NHRA. Þegar bætt er við efni sem inniheldur nýtrógen og/eða súrefni getur það útfært blöndu sem er serkari en 0. Flestar tegundir af bensíni geta mætt þessum staðli.

1:9 VÖKVAYFIRFALL:

Öll ökutæki með einhverskonar vökvayfirfall skulu hafa tank til að taka við vökvanum án þess að hann hellist á brautina. Minnsti yfirfallstankur verður að geta tekið við lágmark ½ lítra. Yfirfall má fara inná pústflækjur á þeim ökutækjum sem brenna nítrómetan og/eða alkóhóli og hafa forþjöppu.

1:10 METANÓL:

Methanól er glær vökvi með milda lykt við umhverfishita. Methanól er selt í tveimur opinberum stöðlum í USA, gerð: A og AA. Báðir staðlarnir eru viðukenndir til notkunnar í keppnum NHRA. Keppendur ættu að athuga að methanól nái þeim hreinleika sem þessir staðlar kveða á um. Staðlar fyrir hverja gerð eru sýndir í töflum hér að neðan (ríkisstaðlar í USA). LÝSING Á HREINU METHANÓLI:

GERÐ A GERÐ AA
Methanol contend wt % min. 99,85 99,85
Acetone/aldehydes ppm, max 30 30
Acetone ppm, max 20
Ethanol ppm, max 10
Acid (as acetic acid), ppm max 30 30
Water content, ppm, max 1500 1000
Specific gravity 20/20* C ,7982 ,7982
Permanganate time. min. 30 30
Odor Characteristic
Distillation range at 101 kPa (760mm Hg.) 1C must include 64,6
Color platinium-cobalt, scale mix 5 5
Appeariance Clear-colorless
Residula on evaporation g/100 ml. ,001 ,001
Carbonizable impurites; color
Platinium-cobalt scale, max 30 30

Þar sem methanól er rakadrægt efni, dregur það raka úr andrúmsloftinu sem gerir það að verkum að það verður ólöglegt til nokunnar í keppnum NHRA. Keppendur eru minntir á að hafa methanól geymslur vel lokaðar til að varana því að raki geti safnatí methanólið. Keppendur eru hvattir til að láta skoðunarmann athuga methanólið leiki vafi á hreinleika þess.

1:11 HLÁTURGAS N2O:

Sjá skyldu mál og staðla fyrir viðkomandi flokk vegna notkunnar á hláturgasi. Notkunn á öðrum efnum en hláturgasi sem blandast í eldsneyti undir þrýsingi er starnglega bönnuð.

1:12 OLÍUKERFI:

“Accusum, drysump” olíusýur flæðilínur o.s.f. ekki leyfðar í ökumannsrými. Olíuþrýstimælar og leiðslur þeim tilheyrandi leift í ökumannsrými. Málm eða vírofnar leiðslur skylda, mest 3/16” (4,8mm) að innanmáli.

1:13 PROPYLINE OXIDE:

Notkunn á “Propyline oxide”er bönnuð í öllum flokkum.


1:14 KEFLAFORÞJÖPPUR:

Keflagerð “rootstype”: Stærsta leyfileg stærð er 14-71; með 19” (48,26cm) húslengd og 11,5” húsbreidd og ½” (1,27cm) minnsta húsþykkt. Minnsta þykkt á framplötu er ½” (1,27cm) og 0,300”(0,762mm) á aftur plötu. Yfirgírun má ekki fara yfir 70%. Stillanlegar marghraða forþjöppur bannaðar. Sprengilok á soggrein samkv.staðli SFI Spec 23-1 skylda þegar nítrómethan er notað.

Keflagerð “rootstype high-helix”(snigill): Verður að vera með samsvarandi stærð á húsi og “rootstype”. Horn á snigilkefli má ekke fara fram úr 6,5 gráðum á hverja tommu. Notkunn á snigilforþjöppum er takmörkuð við TAD og TAFC. Mesta yfirgýrun má ekki fara fram úr 70%. Ál pinnboltar sem festa forþjöppu við soggrein skylda. Sjá flokkareglur fyrir þykkt á soggrein og öryggisbelti.

Keflagerð “screwtype”: Skal vera samkv. staðli SFI Spec 34. 1. Mesta lengd á húsi 16” (40,64cm); minnsta þykkt á húsi og framplötu er ¼” (0,635cm); minnsta þykkt á afturplötu er 0,300”(0,762mm). Notkunn á skrúfu forþjöppum er takmörkuð við TAD og TAFC. Hæsta leifilegt yfirdrif er reiknað með formúlunni, vélarstærð X 0,004 = mesta yfirdrif; aukalega hefur yfirdrif verið takmarkað við 2,16 X vélarsnúning (116%). Sumir framleiðendur geta takmarkað enn meira yfirdrif á sinni framleiðslu. Öll forþjöppuhús skulu vera merkt framleiðanda. Þessum takmörunum verður fylgt eftir af Kvartmíluklúbbnum. Toppplata á soggrein skal vera samkv. Staðli SFI Spec

23. 1. Til viðbótar við forþjöppuplötu og öryggisbelti verða að vera samkv. Staðli SFI Spec14.21. ál pinnboltar milli forþjöppu og soggreinar skylda. 1:13 ÖRYGGISBELTI Á FORÞJÖPPU: Öryggisbelti á forþjöppur skylda samkv. Stöðlum SFI Spec.. Öryggisbeltin eru til þess að forþjappan losni ekki frá vél við sprengingu. TF og FC samkv staðli SFI Spec 14.2, TAD og TAFC “rootstype”samkv staðli SFI Spec 14.2 eða 14.1 ef toppplata á soggrein samkv stali SFI Spec 23.1 er notuð; TAD og TAFC skrúfugerð SFI Spec 14.21; COMP og ET sem not alkóhól, samkv staðli SFI Spec 14.1. Öryggisbelti mega ekki ver eldri en tveggja ára sjá flokka reglur.

1:15 INNGJÖF:

Burt séð frá flokkum skulu öll ökutæki hafa fótstýrða inngjöf sem hefur jákvætt virkandi afsláttarfjöður, tengda beint í inngjafararm blöndungs. Stoppskrúfa eða þess háttar skal vera sett á inngjöf til að koma í veg fyrir að hún fari yfir mestu opnun og festist opin. Til viðbótar afsláttar fjöður ætti að koma fyrir útbúnaði til að hægt sé að slá af inngjöf handvirkt (með því að nota fætur/fót)sem sett ætti að vera á breytta inngjafir nema vökva og/eða kapalstýrðar. Fjöldaframleidd kapalinngjafarkerfi leyfð. Innsogskaplar og/eða brösuð og/eða soðin fittings á stálkapla ekki leyfð. Enginn hluti inngjafakerfis má vera neðar en grind ökutækis.

1:16 ÖNDUNARTÚÐUR-LOFTRÆSTIGÖT:

Skylda á öllum bílum í TF, FC, TAD og TAFC. Samþykkt í öllum flokkum. Þar sem þetta er notað skulu túðurnar ganga inn í samþykkta affallstanka sem geta tekið við 1.US galloni (3,8l) fyrir hverja vél. Gildra skal vera í öllum tönkum svo að vökvi geti ekki lekið á braut. Mælt er með að sett sé glær rúða eða annað gæjugat á affallstanka svo hægt sé að athuga hvort hann sé tómur fyrir ferð.

DRIFRÁS: 2

2:1 AFTURSPRENGIVARNARBÚNAÐUR: (Anti-blowbackdevice)

Ef segir svo í flokksreglum skal setja útbúnað sem hindrar kúplingshús eða breytistykki (adaptor) geti sprungið afturábak, þegar um kastjóls eða tengslissprengingu er að ræða. Efni skal vera minnst 0,875”(2,2cm) að utanmáli með 0,083” (2mm) veggþykkt crome-moly (Raynolds531) rör með 3/8” (3,8mm) festingum. Kúlulæstir boltar bannaðir.

Æskileg afstaða á sprengistífum

2:2 ÖXULFESTINGAÚTBÚNAÐUR:

Öll ökutæki nema í Standard flokki, og sumir flokkar götubíla, (sjá flokkareglur) skulu vera útbúnir fullnægjandiútbúnaði svo að afturöxlar séu fastir í afturás. Minnst 0,090” (2,3mm) stállegufestingar eru skylda. Þar sem því verður við komið er mælt með fljótandi öxlum. Upprunalegar C klemmu öxulfestingar eru ekki samþykktar.

2:3 TENGSLI:

Öll ökutæki í keppninema sjálfskift séu útbúin fótstýrðu tengsli með jákvæðu stoppi, sem hindrar tengsli í að fara framhjá miðju eða hlutlausu einog á miðflóttafalstengslum. Allir ástigsfetlar skulu vera með stömu yfirborði. Öll snuðtengsli(slider cltches) verða að vera samkv. staðli SFI Spec 1. 2.

2:4 DRIFLÍNA:

Á öllum ökutækjum þar sem ökumaður situr ofaná eða fyrir aftan miðlínu afturáss, skal vera góður varnarskjöldur úr minns 0,120” (3mm) þykkri stálplötu örugglega festri við afturás og yfir ástengi. Æskilegt er að nota rillað ástengi í stað hjöruliðs. Fyrir beinar tengingar er lágmarksstærð 0,063” (1,6mm) ál, hafa verður skoðunarhlíf sem hægt er að fjarlægja svo mögulegt sé að skoða tenginguna. Festa verður tengingarnar örugglega í miðhluta afturáss og í kasthjólsbreytistykki eða eins og sagt er í flokkareglum. Í stað bita nálægt fremri hjörulið á drifskafti skulu öll keppnistæki sem hafa opið drifskaft hafa lykkju (loop) utan um drifskaftið sem er 360gráðu lokaður hringur með að minnsta kosti ¼” (6,4mm) minnst efnisþykkt og 2” (5,08cm) efnisbreidd eða 7/8” (2,2cm) X 0,065” (1,7mm) soðið stálrör örugglega fest og staðsett innan við 6” (15,24cm) fyrir aftan fremri hjörulið drifskafts, sem styður skaftið ef hjöruliður brotnar. Mælt er með hringlagaðri lykkju frekar en sporöskjulagaðri til að minnka álag á lykkjuna. Opin driflína sem fer framhjá einhverjum hluta af líkama ökumanns skal vera algerlega lokuð með minnst 1/8” (3,2mm) þykkri stálplötu vel festri við grind eða grindarbyggingu.

Drifskaftsbaula

2:5 KASTHJÓL:

Notkunn á upprunalegu pottkasthjóli og/eða tengslispressu er bönnuð í flestum flokkum. Sjá nánar flokkareglur. Annars skal hafa hluti samkvæmt staðli SFI Spec 1. 1.

2:6 KASTHJÓLSHLÍF (KÚPLINGSHÚS):

Notkunn á sexkant boltum (allen head) til að bolta kúplingshús við vél er ekki leyfð. Allir boltar skulu vera þekkjanlegir. Mest dýpt á kúplingshúsum má vera 8,5” (21,59cm). Allir boltar í kúplingshús skulu settir í áður en vél er ræst, einnig í upphitun.

2:7 KASTHJÓLSHLÍF:

TF, FC, TAD, TAFC: TF, FC og alcóhól ökutæki með tengsli skulu hafa kasthjólshlíf eftir staðli SFI Spec 6. 2. TF og FC: Vélarplata úr minnst ¼” (6,4mm) crome-moly (Raynolds 531 (má ekki vera samsett)) milli kasthjólshlífar og vélar skal fest eins og sýnt er á mynd. Alkohol ökutæki séu með ¼” (6,4mm) stál eða ál (6061 eða 7075 T-6) vélarplötu (má ekki vera samsett). Kemísk heflun (cemical milling) eða aðrar efnis veikjandi aðferðir bannaðar. 0,090” (2,4mm) 4130 stál eða titanium inlegg skal sniðið inní kúplingshúsið sömu breiddar og flati hluti hússins. Það skal soðið saman svo það passi inní húsið og snúist til að taka á sig högg. Lágmark 5 boltar ekki minni en 3/8” (10mm) skulu notaðir til að festa eftirmarkaðs plánetugírkassa við kúplingshús. Hringur skal settur inn í kúplingshúsið ½” (1,27cm) þykkur þar sem boltar skulu festir í ½” (1,27cm) rær, soðar innan á kúplingshús samþykktar.

kúplingshús

2:8 KÚPLINGSHÚS:

PROSTOCK, COMP ELIM: Ökutæki í Pro Stock og comp flokkum útbúin með tengsli skulu hafa kúplingshús samkvæmt staðli SFI Spec 6. 1. Skjöldur samkvæmt staðli SFI Spec 6.2 samþykktur. Engar breytingar á fjöldaframleiðsluhönnun leyfðar. Vélarplata minnst 1/8” (3,2mm) mest ½” (1,27mm) þykk stál eða ál (6061 eða 7075T-6). Kælingargöt stærð og staðsettning sjá mynd.

2:9 KÚPLINGSHÚS:

AÐRIR FLOKKAR – VENJULEG SPRENGIHELD KÚPLINGSHÚS: Öll ökutæki skulu hafa samþykkt breytistykki samkv.staðli SFI Spec 6. 1 með vélarplötu og boltum, eins og gert er ráð fyrir frá framleiðanda (sjá flokkareglur). Ekki má breyta kúplingshúsum á neinn hátt: skulu vera eins og þau komu frá framleiðanda. Undantekning frá þessu eru VW og Porsche véla þurfa ekki að hafa sprengihlif ef þær eru ekki með forþjöppu og brenna bensíni. Porsche vélar verða að nota stál kasthjól. Allir bílar í Modefied Compact flokkum þar sem skjöldur samkv. staðli SFI Spec 6. 1 er ekki fánlegur hafi skjöld úr ¼” stáli, örugglega festan við grind eða grindarbyggingu, og nái algerlaga í 360gráður utan um kúplingshús. Skjöld má ekki bolta við kúplingshús eða vél. Skjöldur skal ná lágmark 1” (2,54cm) fram fyrir kasthjól og 1” (2,54cm) aftur fyrir tengslispressu. Aðrar vélar þar sem ekki er fáanlegt hús samkv. SFI spec 6.1, mega nota af öðrum vélum og festa það við vélarplötu sem fest er við blokk með öllum tiltækum boltum.

2:10 KÚPLINGSHÚS: SKOÐUNAR OG STILLIGÖT:

Aðeins ein tengslisstillirauf leif ef gerð nákvæmlega eftir leiðbeyningum sjá mynd. Rauf skal vera lokuð með plötu ¼” (6,4mm) og boltuð með 6 stk 5/16” (8mm) boltum vel merktum Grade 8. Skoðunar og stillirauf má vera skorin á afturhluta kúplingshúss. Raufin má ekki ná yfir meira en 90gráður (ekki lengra en 8,5” (21,59cm)) af afturfleti húss. Enginn hluti hreyfanlegra tengslisparta má ná aftur fyrir skoðunar rauf. Hlíf yfir skoðunar rauf sé minnst úr ¼” (6,4mm), þykku stáli fest með lágmark 12stk 5/16” (8mm) grade 8 boltum. Sjá mynd.

Skoðunargöt
Skoðunargöt

2:11 AFTURÁS:

Soðin mismunadrif bönnuð í öllum flokkum. Fjórhjóladrif leyft í öllum standard bílum og brackret bílum sem fara yfir 12sek. Sjá annars flokkareglur.

2:12 GÍRKASSI:

Öll ökutæki verða að hafa bakkgír sem virkar.

2:13 GÍKASSI/PLÁNETU:

Gírkassaskjöldur sem hylur gírkassa og bakkgír samkv. staðli SFI Spec 4. 1, skylda ef vél brennir nítrómethan, methanól, er með forþjöppu eða yfirgír. Lágmark þrír boltar 38/” (10mm) skulu notaðir til að festa plánetugírkassa við kúplingshús nema eins og sagt er í TF, FC, TAD, TAFC.

2:14 SJÁLFSKIFTING:

Skiftar sem ekki eru verksmiðjuframleiddir en festir eru við gólf skulu hafa gormlokaða jákvæða bakkgírsútilokunn (reverce lock out) sem hindrar að skiftir fari í bakkgír. Skillt er að hafa rofa sem hindrar að hægt sé að ræsa bíl í gír. Þó eru undantekningar á þessu hvað varðar sum ökutæki í SS, alla Standard flokka, Götubílaflokka, (þó ekki útbúna) og þá bracket flokka sem eru á 10sek og ofar. Öll ökutæki sem nota sjálfskiftingu hafi sprengiskjöld samkvæmt staðli SFI Spec 4. 1, skjöld þarf að skoða á fimm ára frest frá dagsettningu framleiðanda. Skjöldur yfir sjálfskiftingu er leyfður í öllum flokkum. Allir bílar sem keppa í Comp verða að vera með Flexplötu (flexplate) samkvæmt staðli SFI Spec 29-1. Og flexplötu hlíf samkvæmt staðli SFI Spec 30-1, samþykkt í öllum flokkum. Allar leiðslur fyrir sjálfskiftikæla og aðrar vökvaleiðslur verða að vera úr þar til gerðum þrýstihosum sem þola sjálskiftivökva og mikinn hita.

HEMLAR OG FJÖÐRUN: 3

3:1 HEMLAR:

Hemlar á öllum ökutækjum skulu prófaðir með ástigi á fetil. Hemlar skulu virka vel og vera í góðu ástandi, með vökvabremsum á afturhjólum minnst. Mælt er með vökvabremsum á öll fjögur hjól eða eins og stendur í flokkareglum. Létting á bakplötum, bremsuskálum og/eða kjálkum með því að bora eða skera burtu málm bönnuð. Kælinga eða léttingagöt er bannað að bora á pottjárnsdiska. Áldiskar eru bannaðir. Ef hanbremsa er notuð skal handfangið vera inn í yfirbyggingu eða ökumannsklefa. Skyllt er að hafa handbremsu í öllum ökutækjum með kúplingu og mælt er með þeim á sjálfskiftum ökutækjum. Bremsurör skulu ver úr stáli, stálofin eða DOT samþykktar slöngur. Lagt utan við grind eða í 16” (40,64cm) löngu og 1/8” (3,2mm)veggþykku stálröri örugglega festu þar sem leiðslur fara fram hjá kasthjóli. Bremsuleiðslur á bíl með vél fyrir aftan ökumann séu varðar af röri eða annari stálbyggingu þar sem bremsuleiðslur fara fram hjá vél. Mælt er með vara bermsukerfi á öllum bílum, sérstaklega þeim sem aðeins eru með bremsur á afturhjólum. Yfirborð fetla skal vera stamt. Sjálfvirk bremsukerfi (raf eða loftknúin o.s.f.) til að minka spól eru bönnuð. Stjórnun og losun á hemlum skal framkvæmd af ökumanni.

3:2 HÖGGDEYFAR:

Öll ökutæki í keppni hafi einn virkan höggdeyfi á hvert fjaðrandi hjól. Höggdeyfar séu annað hvort vökva eða gagnverkandi gerðar, örugglega festir og í góðu lagi. Sjá flokkareglur.

3:3 STÝRI:

Stýriskerfi í hverju ökutæki verður að vera öruggt og má ekki hafa neinar augljósar takmarkanir. Allir soðnir hlutir hafi sjáanlegar aukastyrkingar. Aðeins venjuleg bifreiðastýrikerfi leyfð. Allir stangaendar séu a.m.k. 3/8” (10mm) í þvermál og verða að vera með flötum skinnum sem varna því að legan geti dregist út. Holir stangaendar bannaðir. Allar stýrisvélar sector og stöng verða að vera festar á grindarbita eða sambærilegan bita, ekki fest við kúplingshús kúplingshúsbreytistykki, vélaplötu eða eldvegg. Öryggisstopp (t.d kragi, baula, splittaður biti) skal vera sett því til varnaðar að stýrisstöng geti slasað ökumann við högg að framan. Venjulegir fjöldaframleiddir stýrishjólslásar (quick-disconnect) til að losa stýrishjól leyfðir.

3:4 FJÖÐRUNARKERFI:

Öll ökutæki skulu hafa fulla fjöðrun af þeirri gerð sem framleidd er af bílaframleiðendum, þ.e. vindustangir, gormar o.s.f. Fast soðnir fram og afturásar leyfðir, þegar það er tekið fram í flokkareglum. Allir endar á stöngum verða að vera með flötum skinnum sem hindra að legur losni. Holir stangaendar bannaðir. Farartæki á þremur hjólum eru bönnuð í öllum keppnisflokkum. Stífur eru ekki nauðsinlegar þegar framás er fastur (soðinn) 18” (45,7cm) eða minna frá spindilboltum (king pin axis). Öll fjöðrun sem notar bita eða rör sem framás skal hafa stífur (radius rods) festar í grind.

fjaðrir

3:5 BÚKKAR:

Minnstu leyfilegu endar (rod ends) á “ladder” gerð búkkum eru ¾” (1,905cm) stál. Mælt er með að stangaendastrappar haldi búkkunum á sínum stað ef endi brottnar í keppni. Öll griptæki sem ekki eru föst að framan verða að hafa fjóra bolta eða strappa til að koma í veg fyrir að þau snerti braut. Sjá mynd.

stýrisendar
ladder

3:6 PRJÓNGRINDUR:

Breyttir flokkar: mesta leyfileg lengd á prjóngrindum er 54” (137,16cm), mælt frá festingum á afturás til aftasta punkts á prjóngrind. Málmhjól ekki leyfð.

GRIND : 4

4:1 STILLINGAR:

Öll ökutæki í keppni skulu vera með rétt framhjól og framhjólabil til að tryggja góða aksturseiginleika á öllum hraða.

4:2 BALLEST:

Eins og leyfð er í flokkareglum. Allt það efni sem sem notað er til að bæta við þyngd ökutækis skal endanlega fest við byggingu bíls, þ.e. grind en mmá þó ekki vera staðsett fyrir aftan afturenda bíls né fyrir ofan afturdekk. Hvorki vökva eða laus ballest leyfð (þ.e. vatn, sandpokar, steinar, skotpokar málmstykki o.s.f.). kassar undir ballest 2 stk. hámark, skulu gerðir úr minnst 1/8” (3,2mm) þykku stáli, sjá mynd. Í þeim má geyma litla hluti (s.s. skotpoka, blýstangir o.s.f.) en skulu ekki vega meira en 125lbs (57 kg) eða eins og sagt er til u í flkkareglum. Kassinn skal vera vel festur við grind bíls eða þverbita með minnst tveimur ½” (1,27cm)þvermáls stálboltum. Allur vökvi annar en vélarvökvi sem staðsettur er fyrir aftan hvalbak(eldvegg )er litið á sem ballest og ekki leyft. Mesta þyngd sem fjarlægja má til að í flokk vegna mismunar í flokkareikningi er 100lbs (45,45kg) sjá flokkareglur. Færanleg ballest verður að vera örugglega fest við grind eða byggingu ökutækis með minnst tveim ½” (1,27cm) stálboltum á hver notuð 100lbs (45,45kg). Notkunn á I-bitum. Járnbrautarteinum, strokklokum eða öðrum hornóttum hlutum bönnuð. Færanlega ballest má ekki festa með hosuklemmum, vírbindum, vírum eða sambærilegu (sjá mynd fyrir réttar festingar). Ballest sem mælt er með: 1) Þykkara gólf, þyngra stál. Þyngra stálgólf og/eða stálplata bönnuð. 2) Styrktarbitar í grind. 3) Aukastyrkur í öryggisbúnaði t.d. aukastífur í veltibúr, kasthjólsskjöldur o.s.f.

ballest
ballest

4:3 HLÍFÐARPLATA(DEFLECTOR PLATE):

Ökutæki með vél fyrir aftan ökumann skulu hafa þar til gerða hlífðarplötu milli vélar og ökumanns til að skilja að ökumann og bensíntank annarsvegar og vél hinnsvegar. Platan verður að vera gerð ú að minnsta kost 1/8” (2,2mm) þykku 6061 T6 áli, eða 0,60” (1,5mm) þykku stáli eða titaníum. Platan nái frá efstu trissu forþjöppu og niður fyrir neðstu trissu á ökutækjum með reimdrifna forþjöppu. Önnur ökutæki hafi plötu sem hylur frá axlarhæð að botni grindar. Á öllum lokuðum vélar/ökumannsklefum verður að vera kúpa eða skermur til að loka ökumann algerlega frá vél. Minnsta festing fyrir plötu eru 4. Stk 5/8” (1,6mm) grade 5 boltar. Sjá kælikerfi fyrir fleiri skyldu atriði.

hlífðarplata

4:4 GRIND:

Allar grindur sem byggðar eru eftir flokksreglum skulu númeraðar (raðnúmer) dagsettar (framleiðsludagur) og skoðaðar árlega, en Comp og Bracket flokkar sem fara niður fyrir 7,49sek á tveggja ára fresti og hafi skoðunarnúmer límt á grind áður en tekið er þátt í keppni. Bannað er að slípa suður. Allar punktsuður hafi sýnilegar styrkingar. Blæjubílar eða bílar með trefjaplasthúsi sem fara 11,99sek og undir skulu hafa veltigrind en bílar sem fara 10,99sek og undir hafi veltibúr. Sjá flokkareglur

4:5 HÆÐ FRÁ JÖRÐU:

Minnst 3” (7,62cm) frá fremstahluta ökutækis að punkti 12” (30,48cm)aftan við miðlínu spindla, minnst 2” (5308cm) þar fyrir aftan að undanskilinni olíupönnu og púsflækjum. Sjá annars flokkareglur.

4:6 MAGNAFLUX VOTTORÐ:

Eða gegnumlýsingar vottorð ætti hver bílstjóri að verða sér út um. Sérstaklega fyrir alla soðna, breytta og sérsmíðaða hluti. Ökumaður/eigandi keppnistækis getur verið skyldaður til að leggja fram slíkt vottorð af tækninefnd KK.

4:7 FALLHLÍFAR:

Sé það tekið fram í flokksreglum er skylda að hafa bremsufallhlíf framleidda af viðurkenndum framleiðanda fallhlífa fyrir spyrnuakstur. Skoðunarmaður getur skoðaðfallhlífar og notkunn þeirra m.a hvort þar séu trosnuð og/eða slitin bönd, rifinn og/eða skítugur dúkur, eða skemmdar stýrihlífar o.s.f.. hulstur utan um fallhlífarkapal verður að vera fest við grindarrör eða annan fastan hlut, ekki þó aftar en 1” (2,54cm) frá losunar hanfangi. Hulstrið utan um losunarkapalinn sé fest innan við 12” (30,48cm) frá fallhlífarpakka á þann hátt að það sé innri kapallinn sem sér um að losa fallhlífina (sjá Mynd). Á öllum bílum sem brenna öðru en bensíni er skylda að hafa allar ópakkaðar hjúplínur og fallhlífapakka varða af eldtraustu efni. Æskilegt á öllum fallhlífapökkum. Fallhlífar skulu hafa sjálfstæða festingu, notkunn á kúlulæsingu (ball-lock) við fallhlífafestingu bönnuð. Sjáið flokkareglur um notkunn á tveimur fallhlífum, þannig kerfi krefs aðskyldra festinga fyrir dúklínur á hvoru fallhlífakerfi. Fallhlífar eru æskilegar á öllumsérsmíðuðum bílum og skylda þegar bílar eru komnir í 150mph (240kmh) eða meira.

fallhlíf

4:8 PINION STUÐNINGUR:

Öll ökutæki með opna drifrás skulu hafa spyrnur/spyrnubúkka, eða einhvern annan góðan pinion stuðning til að hindra snúning á afturás. Mælt er með bita frá gírkassa að afturás úr stáli (torque tube) með 1/8”(3,2mm) veggþykkt minnst til að loka opnum drifrásum.

4:9 VELTIGRIND:

Allar veltigrindur skulu vera innan við 6”(15,24cm) frá höfði ökumanns mælt að fatan eða frá hlið og minnst 3” (7,62cm) ofan við hjálm ökumanns þegar hann er í aksturstöðu, og að minnsta kosti eins breitt og axlir ökumanns eða innan við 1”(2,54cm) frá ökumanns hurð. Grindin skal vera vel styrkt með þverstífu til að hún gangi fram eða falli saman í veltu eða öðru óhappi. Öll rör sem notuð eru í veltigrindur og búr verða að vera heildreigin og saumlaus. Sjá myndir og töflur. Stífur skulu hafa sama ummál og veggþykkt og aðalbogi, og vera soðnar við aðalboga ekki meira en 5” (12,7cm) frá efsta punkti hans. Hliðarstífa hjá ökumanni verður einnig að vera til staðar og skal fara milli axlar og olnboga ökumans. Sjá mynd.

4:10 VELTIBÚR:

Öll smíði skal hönnuð svo að hún verndi ökumann frá öllum hornum í 360gráður. Þegar ökumaður situr í sæti sínu í akstursstöðu skal búrið vera minnst 3” (7,62cm) framan við hjálm ökumanns. Hliðarstífur verða að liggja framhjá ökumanni milli axlar og olnboga. Öll búrsmíði verður að hafa í byggingu sinni þverstöng fyrir sætisfestingar og sem snertipunkt fyrir öryggisbelti og má ekki ver staðsett meira en 4”(10,16cm) fyrir neðan axlir ökumanns eða hliðarstífu. Allar krómmólý suður skulu soðnar með viðurkenndum suðuaðferðum (TIG suðu) stálsuður séu soðnar með viðurkenndri argonsuðu (MIG suðu). Bannað er að slípa eða slétta suður. Allar beygjur verða að vera sléttar og lausar við krumpur og brot. Aðalbogar verða að vera heilir, ekki má sjóða saman tvo helminga til að nota sem aðalboga. Öll þau veltibúr og grindur sem smíðuð eru eftir alþjóðareglum eða almennt viður kenndum smíðareglum eru lögleg í keppni hjá KK.

veltigrind
veltibúr
grind

FELGUR OG HJÓLBARÐAR: 5

5:1 HJÓLBARÐAR:

Hjólbarðar eru skoðaðir til að kanna ástand þeirra þýsting o.s.f. og skulu úrskurðaðir lausir við alla augljósa galla af skoðunarmönnum í keppni og jafnvel fyrir hverja ferð. Öll götudekk hafi a.m.k. 2.mm mynsturdýpt og slikkar hafi a.m.k. 1.mm slitholur. Hjólbarðar undan landbúnaðartækjum eða aftanívögnum bannaðir. Áskrúfaður ventill skylda í slöngulausum hjólbörðum á bílum sem fara á 11,99sek og undir. "Soft compound" hjólbarðar (götuslikkar DOT merktir) eru skilgreindir á eftirfarandi hátt: Hjólbarðar sérstaklega gerðir úr mjúku gúmmí fyrir spyrnur á þurru slitlagi (malbik/steinsteypa), með mjög litla mynsturdýpt (tread dept), eftirgefanlegar hliðar (wrinkel wall), og lóðréttu mynstri (20° eða minna), og engu láréttu mynstri (yfir 30°).

5:2 FELGUR:

Fjarlægja verður hjólkoppa fyrir skoðun til að ganga úr skugga um hvort felgur séu lausar, sprungur í þeim, slitin eða of stór göt, ástand spindla, öxla, splitta o.s.f.. smelltir hjólkoppar eru bannaðir í öllum flokkum. Allar bifreiðar skulu útbúnar bílfelgum með ninnst 12”(30,48cm) í þvermál nema að flokkareglur kveði á um annað. Mótorhjólafelgur og léttvigtandi teinabílfelgur skulu útbúnar með stálpílárum 0,100”(2,54mm) í þvermál vandlega krosslögðum til að tryggja mestan styrk. Öll píláragöt í felgu og miðju eiga að vera fóðruð. Allar tilraunir til að létta felgur eru bannaðar. Allir felguboltar nái inná miðjusvæði (hex) á felguró með fjarlægð sem er sú sama og þvermál bolta. Felgurær úr áli eru ekki samþykktar. Mesta felgubreidd á bílum er 16”(40,64cm). Afturfelgudiskar eða aðrar hlífar eru ekki leyfðar í neinum flokkum.

felgur

INNRÉTTING: 6

6:1 ÖKUMANNSKLEFI:

Allir innréttingarhlutar (hvalbakur, gólf, innri bretti að aftan, hurðir o.s.f.) inn í ökumannsklefa í bíl með lokuðum klefa þar sem ökumaður er staðsettur aftan við vél skulu smíðaðir úr öðrum efnum en magnesíum.

6:2 KLÆÐNING OG SÆTI:

Ökumannssæti í öllum ökutækjum í keppni skal smíðað, skorðað, fest og klætt svo það gefi fulla bak og axla vernd í óhappi. Ökumannssæti sé syrkt í botni og á baki af grindarbitum (sjá mynd). Öll sæti skulu klædd eða eins og sagt er í flokkareglum. Sæti smíðuð úr áli, trefjaplasti, eða öðrum viðurkenndum efnum ( NHRA accepted) vel skorðuð, fest og studd samþykkt. Magnesíum sæti bönnuð.

Ökumannssæti

6:3 GLUGGANET:

Ökutæki með hurðum og veltibúri skulu haa viðurkennt glugganet af borðagerð fest við innri helming á hliðarstífu og innri helming toppstífu á veltibúri við glugga ökumanns. Net skal vera endanlega fest að neðan. Efrihluti má vera klemmdur á hornum við augabolta eða með festingum af öryggisbeltagerð. Notkunn á hosuklemmum eða ólasmellum bönnuð. Sjá flokkareglu um önnur atriði.

YFIRBYGGING: 7

7:1 AUGLÝSINGAR:

Kvartmíluklúbburinn áskilur sér rétt að stjórna með reglugerð auglýsingum sem koma fyrir á yfirbyggingu ökutækis í keppnum á hans vegum. Reglur um auglýsingar á keppnistækjum skal liggja frammi hjá KK að minnsta kost einum mánuði fyrir fyrstu keppni ársins.

7:2 LOFTGILDRUR, VÆNGIR:

Loftgildrur, vængir og vindkljúfar aðrir en verksmiðjuframleiddir eru aðeins leyfðir í flokkum ökutækja með opna yfirbyggingu þ. e. dragsters og altred, sjá annars flokkareglur. jákvæður læsingabúnaður til að hindra hreyfingu í ferð skylda. Enginn hlutur má vera innan við 6”(15,24cm) frá hjólbörðum. Fjaðurstírðir vindkljúfar, vængir og “canards” bannaðir. Vængir eða vindkljúfar sem stilla sig sjáfir eða ökumaður stillir meðan á ferð stendur bannaðir.

Vindskeið
Vindskeið

7:3 KEPPNISNÚMER:

Öll keppnistæki verða að hafa keppnisnúmer ökumanns. Númer sé minnst 6”(15,24cm) á hæð og 1,5”(3,81cm) á breidd. Flokka einkenni sé a.m.k. 3”(7,62cm) á hæð og 1”(2,54cm) á breidd. Keppnisnúmer ökumanns og einkenni flokks verða að vera sýnd á löglegan hátt í andstæðum lit frá grunnlit ökutækis eða í ljósum lit á glugga. Flokkur og númer sé úr varanlegum límmerkjum. Gildir aðeins fyrir Comp. Sjá mynd.

Keppnisnúmer

7:4 BRETTI:

Í Super stock og Stock flokkum má snyrta neðsta hluta hjólboga fyrir framan og aftan hjól til að gott rými utan im hjólbarða, mest 2”(5,08cm). Brúnir skulu vera jafnar og líta upprunalega út. Kantar og útvíkkanir á ytri brún bretta eru bannaðar. Ekki má lækka efri línu frambretta. Sjá mynd.

bretti

7:5 HVALBAKUR – ELDVEGGUR:

Öll ökutæki í keppni skulu útbúin málm eða trefjaplast hvalbak sem nær á milli hliða í yfirbyggingu og frá efsta punkti á vélasal, efri þéttingum vélarhlíf- vélarloki eða fleti að botni gólfs og/eða hlífðarpönnu. Eldveggur skal mynda hlíf milli vélar og/eða eldsneytistanks og ökumannsklefa. Öllum opum verður að loka með málmi. Með minnst 0,032”(0,8mm) 6061 T6 áli, eða 0,024”(0,6mm) stáli (boddýstál). Notkunn á magnesíum bönnuð.

7:6 GÓLF:

Öll ökutæki án gólfs skulu útbúin gólfpönnu úr áli eða stáli sem er full lengd og breydd ökumannsklefa aftur fyrir sæti ökumanns. Ökutæki með gólf eða hlífðarpönnu úr trefjaplasti eða brothættu efni skulu hafa neðragólf úr málmi til staðar. Í ökutækjum með trefjaplastgólf skal vera til staðar minnst 2”(5,08cm) X 2”(5,08cm) þverbiti gerður úr prófíl með 0,083”(2mm) veggþykkt, staðsettur milli grindarbita til að tryggja festingu sæta, sætisbeltis, axlabelta og klofbeltis. Hlífðarpönnur og undirgólf sem loka ökumannsklefa hafi góð aftöppunargöt svo ekki safnis þar fyrir vökvar eða aðrir utanaðkomandi hlutir sem valdið geta eldhættu. Minnsta efnisþykkt í undirgólfi er 0,032”(0,8mm) 6061 T6 ál eða 0,024”(0,6mm) stál.

gólf

7:7 LOFTINNTAK(HOOD SCOOP):

Á bifreiðum með fulla yfirbyggingu þar sem leyfð eru loftinntök mega þau ekki ná hærra en 11” (28cm) frá yfirborði á upprunalegri vélarhlíf. Á bifreiðum án yfirbyggingar, með vél fyrir framan ökumannmega loftinntök ekki ná hærra en 11”(28cm) mælt frá efsta punkti blöndungs.

7:8 VINDHLÍF:

Á opnum bifreiðum eða bifreiðum án framrúðu verður að vera málm eða öðrum eldtraustum skildi að vera komið fyrir. Á street roadster og altred bílum sé skjöldurinn 5”(12,07cm) X 12”(30,48cm). Skjöldurinn á að beina vindi, vökvum og öðrum utanaðkomandi hlutum yfir höfuð ökumanns, og ætti að vera þannig festur og staðsettur að hann hindri ekki útsýni ökumanns fram á við á nokkurn hátt.

7:9 FRAMRÚÐA – RÚÐUR:

Framrúða og/eða rúður í öllum bifreiðum, sé þess ekki getið í flokkareglum, skulu vera úr öryggisgleri, Lexan, Makron eða öðrum óbrjótanlegum efnum. Framrúða og/eða rúður séu glærar, án filmu eða litar, nema upprunalegt litað öryggisgler (gildir ekki um götubílaflokka og þá flokka sem þurfa að hafa gilda aðalskoðun til að keppa). Keppnisnúmer og aðrir límmiðar eru leyfðir í öllum rúðum, frm/afturrúðum nema að annað sé tekið fram í flokkareglum. Ekki má setja flokkamerkingar/límmiða þannig í rúður að þeir hindri útsýni ökumanns. Límband sama hvað gerðar, má ekki vera á neinum rúðum. Plexigler ekki leyft.

RAFKERFI: 8

8:1 RAFGEYMAR:

Alla sýrugeyma (blautgeyma) skal festa tryggilega og ekki staðsetja í ökumanns og/eða farþegarými. Tveir bílrafgeymar leyfðir mest og má samanlögð þyngd þeirra ekki vera meiri en 150lbs (69kg). Málm rafgeymafestingar skylda. Festingaboltar séu minnst 3/8”(10mm) sverir. Mælt er með hulstri utan um geymana eins og lýst er í 4:2. Fjöldi rafgeyma getur verið breytilegur, sjá flokkareglur.

8:2 BIÐ OG VIÐBRAGÐSBÚNAÐUR:

Bannað í Comp, Super Stock og stock, leyft í öllum öðrum flokkum. Öll tæki (rafmagns, mekanísk, loftstýrð eða önnur) eða allar breytingar á þeim sem valda seinkun á viðbragði milli jólatrés og “trans brake, line lock o.s.f.” verður talið til start boxa. Öll tæki (rafmagns,mekanísk, loftstýrð eða önnur) eða öll breyting sem felur í sér seinkunn milli þess sem tengli, trans brake, “linelock” o.s.f. er sleppt og keppnistæki fer að hreyfas áfram er einnig talið til ofantaldra tækja. Tæknideild og skoðunarmenn KK bera ábyrgð á skoðun á biðtækjum og ákvörðun um þau. Hver sá sem notar biðtæki í Comp, Super Stock og Stock verður látinn sæta refsingu, allt að eins árs keppnisbann, og/eða stigamissir.

8:3 KVEIKJA:

Allir bílar skulu hafa AF/Á rofa í góðu lagi, staðsettan í seilingar fjarlægð frá ökumanni. Bílar í götubílaflokkum og þeim flokkum sem skyllt er að hafa löglega aðalskoðun til að kepp þurfa ekki að hafa þennan útbúnað þó æskilegt. Sjá flokkareglur. Magnetuádrepararofar (kill button)bannaðir.

8:4 HÖFUÐROFI

Skylda eða eins og sagt er í flokka reglum, mælt með í alla bíla. Höfuðrofi skal staðsettur aftaná ökutækinu, aðgengilegur utanfrá og vel merktur AF/Á og/eða ON/OFF.

8:5 RÆSIR

Öll keppnistæki verða að vera sjálfræsandi.

8:6 AFTURLJÓS

Öll ökutæki hafi a.m.k eitt virkt afturljos ef keppt er í myrkri.

STUÐNINGSFLOKKUR: 9

9:1 TÖLVUR OG GAGNAÖFLUN:

Kvartmíluklúbburinn hefur markað sér stefnu um tölvur og gagnasöfnunar tæki sem staðsett eru í keppnistækinu samkvæmt reglubók NHRA. Allar tölvur sem settar eru í ökutæki af viðkomandi framleiðanda, gerðar til stjórna virkni viðkomandi ökutækis eru leyfðar, en ökutæki má ekki vera búið tölvum sem hafa áhrif á stjórnun ökutækis. Gagnasafnara má nota til að safna upplýsingum um virkni ökutækis svo framarlega sem það hefur ekki áhrif á á ökutækið. Ekkert ökutæki má vera búið tækjum til að ræsa sjálfvirkt af jólatré eða fjarstýringu. Tölvur mega ekki fara af stað þegar stígið er á bensín, bremsur, tengsli o.s.f. Allur útbúnaður verður að vera ræstur með aðskyldum rofum. Allar skynjaralínur/leiðslur sem skynja flæði/þrýsting skulu vera úr málmi eða vírofnar. Tæki má fjarlægja hvenær sem er eftir ákvörðun skoðunarmannaog/eða keppnisstjórnar.

9:2 SLÖKKVITÆKI/KERFI:

Slökkvikerfi um borð með Halon FE 1301 eða 1211 og fest eftir fyrirmælum framleiðanda, þar sem aðalspíss (UM) er beint að ökumanni. Hylki og leiðslur skulu festast inn í gring sjá mynd. Hylki séu varanlega fest (hosuklemmur, vírabindi og þess háttar ekki leyft). Þegar fleira en eitt hylki er til staðar skal hvert hylki hafa sitt sjálfstæða kerfi og spíssa. Notkunn á leiðslum og spíssum öðrum en framleiðandi mælir með er bönnuð. Staðsettning spíssa er mjög mikilvæg. Tveir spíssar eiga að vera staðsettir fyrir framan vél, einn til hvorrar hliðar,og einn í ökumannsrými nálægt stýristúpu. Mælt með að ekki séu fleiri en þrír spíssar á hvert hylki. Vegna virkni kerfissins er mikilvægt að tæma af hylkinu. Það að hleypa aðeins hluta af kefinu er bannað. Kerfið skal staðsett þannig að við sprengingu séu öll hylkin varin fyrir fljúgandi brotum og hlutum. Einnig verður hylkið að vera staðsett þannig að það geti ekki náð snertingu við jörð ef bíll missir hjól. Hylkið skal varið miklum hita og hitabreytingum. Stýriskaplar séu úr málmi. Plast eða plashúðaðir kaplar bannaðir. Kaplar skulu vera festir þannig að þeir skemmist ekki í óhappi. Fylgið leiðbeiningum framleiðanda um ísettningu sérstaklega þegar þarf að beygja kaplana mikið til að varna því að þeir kremjist saman eða brotni. Mælt er með að þessi kerfi séu sett í alla bíla sem brenna öðru en bensíni eða hafa keflaforþjöppu. Öll slökkvikerfi séu með stálleiðslur stál eða ál spíssa og búin þrýstimæli. Á hylki séu upplýsingar um mestu þyngd. Það er á ábyrgð keppanda að vigta hylkið fyrir keppni. Mælt er með að keppandi eða viðgerðaralið hafi tilbúið hlaðið slökkvitæki og slökkviteppi í fórum sínum og tilbúið til notkunnar. Duft eða kolsýru co2 gerðir af slökkvitækjum 2,5lbs, 1,5kg minnst, æskileg.

Slökkvitæki

9:3 TJAKKAR OG BÚKKAR:

Bannað er að fara undir bíl sem aðeins stendur á einum tjakk. Aukaöryggishlutir svo sem búkkar eru skylda til að hafa aukavörn ef tjakkur gefur sig. Þeir sem fylgja ekki þessari reglu geta átt von á útilokunn frá keppni.

9:4 TÆKI TIL AÐ LYFTA:

Öll mekanísk, vökva eða önnur tæki til að lifta framhjólum bíla á startlínu eru bönnuð.

9:5 FLUTNINGAVAGNAR:

Þeir keppendur sem nota langa flutningavagna eða bíla, skulu athuga að afturdyr sem leggjast niður verða að vera lokaðar eftir að bíll hefur verið hlaðinn/afhlaðinn. Einnig að allar lausa sliskjur skulu teknar burt og geymdar á öruggum stað eftir notkunn. Mesta breydd á dráttarvagni og öðrumtækjum má ekki fara yfir 22fet (7,33m).

9:6 ÞRÝSTIFLÖSKUR:

Allar þrýstiflöskur (það er loft, co2 o.s.f.) sem notaðar eru fyrir loftskifta, tengsli og þess háttar verða að hafa viðurkenningarstimpil og þyngd grafið á flöskuna.

9:7 ÝTUSLÁ:

Bannað er að ýta eða draga í gang. Ýtuslá skal staðsett þannig að sá sem er að ýta geti ekki keyrt upp á afturhjól.

9:8 DRÁTTARTÆKI:

Öll dráttartæki sem notuð eru til dráttar skulu vera merkt keppnisnúmeri keppanda á hlið. Hámark 6 aðstoðar menn skulu vera alveg inn í skúffu eða húsi dráttartækis, ekki standa út úr skotti eða aftur af bíl, ekki standa á hliðarbrettum.

9:9 ÞRÁÐLAUS FJARSKIFTI:

Notkunn á talstöðvum sem tjáskiftatækja milli ökumanns og aðstoðarliðs er leyfð í öllum flokkum. Fjarskiftatæki má aldrei nota til upplýsingaöflunar eða stjórnunar á keppnisbúnaði.

9:10 UPPHITUN:

Skylt að ökumanur sé í sæti sínu í eðlilegri ökumannsstellingu alltaf þegar vél er í gangi, TF, FC. Þegar þessir bílar eru ræstir á viðgerðarsvæði verður bíllinn að vera algerlega innan afmarkaðs svæðis enginn hluti af afturhjólum má ná út fyrir enda á viðkomandi vagni, þegar verið er að vinna við endahlið á viðgerðarsvæði eða næsti vagn við hliðina skýlir ekki algerlega á vikomandi bíl meðan vél bílsins er í gangi skal dráttarbíl lagt langsum við hliðina á keppnisbíl. Í einföldu máli keppnislip mega ekki bakka bíl sínum út úr sínu afmarkaða svæði til að ræsa vél.

ÖKUMAÐUR: 10

10:1 ÚTLIT:

Hver einstakur aðili í starfandi aðstoðarliði sé vel vakandi sé hann staddur í uppstillingu, starti eða viðgerðarhluta brautarinnar. Skór eru skylda. Stuttbuxur og berir handleggir og fætur eru bannaðir.

10:2 FRAMKOMA:

Ökutæki í keppni skulu vera snyrtileg og frambærileg á öllum tímum. Þau sem talin eru vanbúin getur verið hafnað af skoðunarmönnum (tækninefnd). Framkona þess fólks sem stendur að ökutækjum er jafn mikilvæg, og er háð sömu skilyrðum.

10:3 ARMÓLAR:

Þar sem það er skylda samkvæmt flokkareglum skulu ökumenn hafa armólar stilltar þannig að hendur/armar ökumanns geti ekki farið út fyrir veltibúr eða grind ökutækis.

10:4 SKILRÍKI:

Allir keppendur verða að hafa gillt ökuskírteini í keppni.

10:5 ÖKUMANNSFESTINGAR/ÖRYGGISBELTI:

Fljótlosandi 3” (7,62cm), axlabelti samkvæmt staðli SFI Spec 16-1 eru skylda í öllu ökutækjum sem þurfa að hafa veltigrind eða þegar veltibúr er sett í þau. Öryggisbelti skulu vera staðalmerkt og þagsett af framleiðanda. Allar sætis og beltafestingar verða að verajafn sterkar, og hannaðar til notkunnar hver með annari. Ísettning ekki leyfð þar sem bolti er settur gegnum sauma eða þræddur gegnum lykkjur í öryggisbelti. Belti mega ekki vera vafin utnaum neðri grindarbita. Rétt staðsettning belta sjá mynd. Aðeins þær beltagerðir leyfðar sem losa allar festingar með einu handtaki. Axlarólar skulu festar við grind, hliðarstífu eða styrktar festingar, þannig að þær hindri hreyfingu ökumanns upp og niður, fram og aftur. Efri bolól er samþykkt í öllum bílum. Öllsæti skulu festast lóðrétt búinn klofól. Hlífðarplötur skylda þar sem belti eru vafin utan um grind, svo þau séu ekki óvarin fyrir núningi ef hjóbarði skyldi losna.

belti

10:6 HÖFUÐHLÍF:

Öll tæki með veltigrind/búr, hafi höfuðhlíf staðsetta fyrir aftan höfuð ökumanns, til að hindra að það lemjist til í óhappi. Veltibúr og/eða grind skal vafin mjúku efni þar sem hún getur snert höfuð ökumanns. Veltibúr og/eða grind sem vafin hefur verið er ekki nóg sem höfuðpúði. Sæti með háu baki og sambyggðum höfuðpúða er í lagi.

höfuðpúði

10:7 HJÁLMUR OG GLERAUGU:

Allir ökumenn í keppni verða að nota öryggishjálm (sjá flokkareglur). Allir hjálmar sem notaðir eru í keppni verða að fá samþykki soðunarmanna KK. Þeir verða að minnsta kosti að uppfylla alþjóðlega staðla um hjálma í keppni, mega ekki vera eldri en 5 ára (3. Ára Polycarbonet) og vera órispaðir og ósprungnir. Ekki má heldur mála eða bletta hjálma eða líma á þá nokkur merki eða að breyta þeim á nokkurn annan hátt og er þá bæði átt við hjálm og gler. Leyft er að skrautmála hjálma en þá verður það að vera gert nákvæmlega eftir fyrirsögn framleiðanda og á viðurkenndu verkstæði. Ef málning hefur flagnað af hjálmi eða brotnað uppúr honum má ekki bletta í sárið heldur koma með hjálminn til skoðunarmanna og láta þá meta hvort hjálmurinn er í lagi eða ekki. Ef blettað hefur verið í hjálm er hann dæmdur ónýtur til keppni. Ekki má þvo hjálma upp úr kemiskum efnum, lífrænum leysiefnum eða öðrum sterkum vökvum eða efnu. Þá má ekki slípa yfirborð hjálma á nokkurn hátt. Ef hjálmar hafa verið teknir í sundur verður að setja þá saman af umboðsmanni framleiðanda eða verkstæði/viðgerðarmönnum sem viðurkenndir eru af viðkomandi framleiðanda.
Eftirfarandi staðlar fyrir hjálma í keppni eru leyfðir:
Snell 1990 – SA (USA)
Snell 1995 – SA (USA)
SFI Spec 31-1 (USA)
SFI Spec 31-2 (USA)
BS 6658-85 (UK)
Allir hjálmar skulu hafa einhvern ofantaldra staðla greinilega merkta á eða í hjálminum svo og framleiðsluár. Allir þeir hjálmar sem sannanlega hafa viðurkenndan staðal fyrir keppni hvort sem hann er viður kendur af FIA, FIM eða öðrum alþjóða keppnisbandalögum er viðurkenndur í keppni hjá KK að öllum ofantöldum skilyrðum fullnægt.

10:8 HÁLSKRAGI:

Verður að vera verksmiðjuframleiddur og hannaður fyrir keppni. Notist eins og framleiðandi segir og sé samkvæmt staðli SFI Spec 3-3, sjá flokkareglur.

10:9 AUKAFÓLK:

Aðeins skráðum keppendum er heimilt að keyra keppnistæki. Alltaf þegar bifreið er gangsett á viðgerðarsvæði eða uppstillinarbraut, með ræsi eða einhverstaðar annarstaðar á brautarsvæðinu, skal viðkomandi keppandi staðsettur í ökumannssætinu. Ökumenn ökutækis sem verið er að ýta eða draga verða að sitja í sæti sínu eins og um akstur sé að ræða. Bannað er að sitja á veltigrind arða standa meða bíll er dreginn.

10:10 HLÍFÐARFÖT:

Ökumenn eru skyldaðir tilað vera í lágmarks hlífðarfatnaði merktum eins og eftirfarandi staðlar sýna samkvæmt SFI stöðlum:

3-2A/20 3-2A/15 3-2A/5 3-2A/1
F/C T/F PS S/S
TA/FC TA/D COMP S/ST
S/C ET (10,99-)
S/G S/E
ET 7,99-9,99.
O/F
G/F

EÐA SAMBÆRILEGIR STAÐLAR. Nema eftrifarandi:
Bíla með vél fyrir framan ökumann og keflaforþjöppu, vera í fötum samkvæmt staðli: SFI Spec 3-2A/20.
Allir bílar með sjálskiftingu staðsetta í ökumannsrými, það er ekkert gólf yfir kassa: SFI Spec 3-2A/15
Við öll föt bætist síðan höfuðsokkur, eldtraustir hanskar og eldtraust stígvél (3- 2A/20 föt) eða eldtefjandi skór (3-2A/15) ökumenn í opnum ökutækjum sem nota opna hjálma verða að nota grímur með öndunarstútum og gleraugu. Ökumenn á öllu opnum bílum verða að vera með eldvarnarhanska. Allir hanskar verða að hafa a.m.k. eitt lag nómex og/eða tvö lög leður og verða að standast staðal SFI Spec 3-3. SFI 3-3 hanskastaðli er stjórnað af staðli á ökumannsklæðnaði, það er að 3A/20 föt verða að nota 3-3/15 hanska, 3-2A/15 föt verða að nota 3-2A/5 hanska og 3-2A/5 föt verða að nota 23-2A/1 hanska. Sjá flokkareglu.
Allir keppendur á mótorhjólum verða að vera í leðurfatnaði með leður hanska og í viðeigandi skóm. Æskilegt er að notaðir séu keppnisgallar.

10:11 SÆTISBELTI:

Sjá kafla 10:5 ökumannsfestingar/öryggisbelti.