Reglur:Lög klúbbsins

Úr Kvartmíluklúbburinn

Útgáfa frá 21. febrúar 2010 kl. 21:39 eftir Trans Am (Umræða | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Núverandi útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara á: flakk, leita

Lög Kvartmíluklúbbsins

Hafnarfirði 9.október 2000

  • 1. gr. Félagið heitir Kvartmíluklúbburinn. Heimili og varnarþing félagsins skal vera í Hafnarfirði.


  • 2. gr. Tilgangur félagsins er að sameina áhugamenn um mótorsport og bílaáhugamennsku, starfrækja keppnishald á "lokuðum svæðum" í bílaíþróttum, efla vitund og tilgang þess að hraðakstur skuli ekki stunda á umferðagötum, þess í stað bjóðist að stunda hraðakstur og sérstakan æfingarakstur á "lokuðum svæðum" til þess ætluðum.


  • 3. gr. Stjórn félagsins skal skipuð 7 mönnum og tveimur varamönnum. Formanni, varaformanni, gjaldkera, upplýsingafulltrúa og ritara ásamt 2 meðstjórnendum. Þessir 7 aðilar hafa jafnan atkvæðisrétt um þau málefni sem ekki þarf að bera fram til samþykktar á almennum félagsfundi. Varamenn sitja stjórnarfundi með fullt málfrelsi og tilllögurétt en ekki atkvæðisrétt.
    • 3. 1. Stjórnarmeðlimir skulu kosnir til tveggja ára í senn, en stjórnarkosning fari fram árlega. Á sléttu ári skal kjósa formann, ritara,einn meðstjórnanda og einn varamann. Á oddatölu ári skal kjósa varaformann, gjaldkera, upplýsingafulltrúa, einn meðstjórnanda og einn varamann.
    • 3. 2. Stjórnarfundir skulu haldnir einu sinni í mánuði.
    • 3. 3. Stjórnarákvörðun er lögmæt ef hún er samþykkt af 2/3 hluta stjórnar eða 4 af 7.


  • 4. gr. Til að hafa kjörgengi til stjórnar skal viðkomandi vera orðin 18 ára.
    • 4. 1. Stjórninni er heimilt að gera verðuga aðila að heiðursfélögum. Það þarfnast samþykkis stjórnarfundar hverju sinni.
    • 4. 2. Við úrsögn úr félaginu á félagsmaður ekki rétt á endurgreiðslu árgjalds eða hluta af eignum félagsins.
    • 4. 3. Stjórnin skal hafa rétt til að víkja mönnum úr félaginu ef þeir vinna bersýnilega á móti félaginu eða skaði heild félagsins. Sá sem í hlut á skal hafa rétt til að skýra mál sitt áður en brottvikning á sér stað. Að því loknu skal stjórnin taka ákvörðun um brottvikninguna. Brottvikning skal vera skrifleg.


  • 5. gr. Félagsgjöld og gjalddagar þeirra skulu ákveðin og samþykkt á aðalfundi. Félagsgjöld taki mið af verðlagi í landinu hverju sinni.
    • 5. 1. Til að skuldbinda félagið þarf til þess undirritun minnst 5 stjórnarmanna.
    • 5. 2. Heiðursfélagar greiða ekki inntökugjald né árgjald.
    • 5. 3. Félagsmenn eru ekki ábyrgir persónulega fyrir skuldum félagsins.


  • 6. gr. Ársreikningur félagsins skal vera tilbúinn og öllum félagsmönnum opinn 14 dögum fyrir aðalfund. Reikningar skulu einnig liggja frammi á aðalfundi til sýnis félagsmönnum.
    • 6. 1. Óheimilt er með öllu að lána einstaklingum, eða nota fé það sem félagið á til annarra nota en þeirra sem einungis snúa að félaginu.
    • 6. 2. Ef um brot er á ákvæði liðar 6. 2. er að ræða skal það varða brottvikningu úr félaginu.
    • 6. 3. Eigi skal afhenda nein sölugögn né hverskonar varning til sölu félagsmönnum né öðrum án þess að fullt reikningshald sé gert í hvert sinn og gjalddagi ákveðin.
    • 6. 4. Aðalfundur félagsins skal haldin í Febrúar ár hvert og skal boðað til hans með minnst tveggja vikna fyrirvara.


  • 7. gr. Breytingar á lögum félagsins má aðeins gera á aðalfundi félagsins. Til að breytingar á lögum félagsins nái fram að ganga þarf, minnst, atkvæði 2/3 hluta mættra félagsmanna. Auglýsa skal tillögur að lagabreytingum í fundarboði til aðalfundar.
    • 7. 1. Ef um ónóga fundarsókn er að ræða skal stjórnin hafa rétt til ákvörðunar á framhaldsaðalfundi viku síðar og telst sá fundur lögmætur óháð fundarsókn. Ónóg fundarsókn til aðalfundar telst vera 20 félagsmenn og færri.
    • 7. 2. Reglunefnd er skipuð af stjórn til tveggja ára í senn. Í reglunefnd skulu sitja 3-5 einstaklingar sem ekki sitja í stjórn KK.

Reglunefnd vinnur og leggur fram keppnisreglubreytingar tillögum fyrir stjórn KK. Til að þær keppnisreglubreytingar tillögur taki gildi verður Stjórn KK að samþykkja þær með meirihluta atkvæða.



  • 8. gr. Atkvæðisrétt hefur hver fullgildur félagsmeðlimur sem hefur greitt sín félagsgjöld.
    • 8. 1. Atkvæðagreiðsla skal vera leynileg ef meirihluti félagsmanna krefst þess.


  • 9. gr. Aðalfundur Kvartmíluklúbbsins ákveður svæðisreglur sem skal framfylgja að fullu hverju sinni. Gildandi lög, svæðisreglur og keppnisreglur skulu vera aðgengilegar öllum félagsmönnum.


  • 10. gr. Fundargerð skal haldin um alla fundi stjórnarinnar þar sem einstakar ákvarðanir eru skráðar, ásamt mætingu félagsmanna. Skal ritari félagsins sjá um þessar fundargerðir og einnig skrá í fundargerðabók.


  • 11.gr. Tillögur um að leggja félagið niður má aðeins taka fyrir á lögmætum aðalfundi. Tillaga um að leggja félagið niður, skal koma fram í fundarboði. Á þessum fundi skal einnig tekið fyrir hvernig ráðstafa skuli öllum eignum félagsins og það skráð og staðfest. Til samþykktar þarf minnst 4/5 hluta atkvæða.
    • 11.1. Sé samþykkt að leggja félagið niður, skal boða til aukaaðalfundar 7 dögum síðar til að staðfesta niðurstöðuna og þarf til þess 4/5 hluta atkvæða.
    • 11.2. Um atriði sem ekki eru tekin fram í lögum þessum, gilda ákvæði í lögum ÍSÍ.


Samþykkt á aukaaðalfundi þann 9.október 2000

Nýtt inn vorið 2007 er:

  • 3. gr. Stjórn félagsins skal skipuð 7 mönnum og tveimur varamönnum. Formanni, varaformanni, gjaldkera, upplýsingafulltrúa og ritara ásamt 2 meðstjórnendum. Þessir 7 aðilar hafa jafnan atkvæðisrétt um þau málefni sem ekki þarf að bera fram til samþykktar á almennum félagsfundi.

Varamenn sitja stjórnarfundi með fullt málfrelsi og tilllögurétt en ekki atkvæðisrétt.

  • 3. 1. Stjórnarmeðlimir skulu kosnir til tveggja ára í senn, en stjórnarkosning fari fram árlega. Annað árið skal kjósa formann, ritara,einn meðstjórnanda og einn varamann. Hitt árið skal kjósa varaformann, gjaldkera, upplýsingafulltrúa, einn meðstjórnanda og einn varamann.